Fréttir frá Íslandi - 01.01.1875, Side 50
50
ATVINNUVEGIR.
talsvcrður vesturfarabugur í marga, hugðust ftcir aðfara 4 næsta ári. f)ó
að vesturfarirnar haíi pannig orðið [>ví nær engar næstliðið ár, [>á var þó
á árinu gjörður margs konar undirbáningur undir vesturfarir framvegis,
hvað sem úr þeim verður. — Af íslendingum í Vesturheimi hafa farið
litlar sögur árið sem leið, en þær sögur, sem farið hafa af þeim, hniga
flestar að því, að þeir haíi átt ervitt uppdráttar, einkum þeir er tekið
höfðu sjer bólfestu í Canadalöndum; þar var árferði hart, og segir sagan,
að Islendingar þar hafi rekizt í mikil vandræði. í Bandaríkjunum var
einnig nokkuð hart um atvinnu, og urðu íslendingar á því að kenna eigi
síður en aðrir. Af íslendingum þeim, er undanfarin ár hafa farið til
Vesturheims, í því skini að afla sjer þar fjár og frama, hafa nokkrir komið
aptur alfarnir til íslands, jafnnær og þeir fóru. Sagt er og, að aðrir vilji
aptur koma, en geti eigi fyrir efnaleysi. Einstaka íslendingur hefur apt-
ur á mót hafizt þar til nokkurs vegs. Má þar til nefna Jón prest Bjarna-
son og Pál stúdent þorláksson, báða ágæta námsmenn og í miklu áliti.
Jón hefur verið kennari þar við skóla, en Páil gengið á prestaskóla, og er
nú orðinn prestur í norskum söfnuði.
Mjög er misjafnt álit manna á íslandi á Vesturheimsferðum. Alþingi,
landsstjómin, cmbættismenn flestir, ritstjórar blaðanna og allur þorri máls-
metandi manna á íslandi eru hjer nálega á einu máli um það, að hafa
ýmugust á ferðum þessum, og eru sumir þeim svo fráhverfir, að þeir álíta
þær ganga næst landráðum, en fiestir aðrir telja þær sprottnar af keimsku
eða framhleypni. En þótt vesturfarir eigi fáa formælendur þar sem nokk-
ur styrkur er, vinnst þó erindsrekum Vesturheimsmanna furðanlega að
telja fólk til slíkra ferða, einkum á norðurlandi, og nokkuð vestanlands
og austan. Sunnlendingar eru spaklátari, og láta lítið bæra á óróa og
burtfararhug. — Af afskiptum þings og stjórnar af úttíutningum er áður
sagt.
M e n n t u n.
Hjer er enn sem optar fátt til frásagna, en þó er vert að fara hjer
um nokkrum orðum, og það því fremur sem bæði menntunarfýsn virðist
allt af vera að aukast og meira menningarmark sýnist nú vora orðið á
ýmsu en áður hefur vcrið.
Að undanförnu hafa að cins 2 prentsmiðjur verið á íslandi; var
önnur þeirra þjóðeign og stóð því undir umsjón stiptsyfirvaldanna. Opt
hafði verið áður kvartað undan því, að þessi prentsmiðja, scm hefur verið
í Reykjavík, væri of háð stjórninni með þessu fyrirkomulagi, og vildu
margir láta selja hana, en af því hefur eigi orðið allt til þessa; en nú gaf
alþingi út lög, cr veitti ráðgjafanum fyrir ísiand umboð til að selja hana.
Ilin önnur prcntsmiðja kcfur verið á Akureyri, og verið kölluð prentsmiðja
norður- og austuramtsins. Ilún liefur vcrið leigð ritstjórum, og á síðustu
árum hefur þar lítið verið prentað annað en frjettablöð. Ritstjóri Norð-