Fréttir frá Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 55
MENNTUN.
55
Ai' annars konar skemmtunum má einkum nefna sjónarleika Jid,
er skólapiltar í Reykjavík ljeku í jólaleyíi sinu. Bubu peir til þessarar
skemmtunar ýmsum bœjarMum. Leikarnir voru pjóðviljinn, nýr
íslenzkur forleikur eptir Mattfas Jokkumsson, Könnusteyparinn
(den politiske kanilestöber) eptir Holbert;, Tímaleysinginn (den
stundeslöse) eptir llolberg, og V o n b i ð i 11 i n n (supplicanten) cptir
Iieiberg. Hinir dönsku leikar voru leiknir eptir íslenzkri þýðingu. Alls
var leikið 4 kveld milli jóla og nýárs. Vcl þótti leikið, og skeramtun
bin bezta.
Ýmisleg h á t í ð a h ö 1 d voru höfð á merkisdögum, svo sem á þrett-
ánda, afmælisdag konungs (8. apríl), sumardaginn fyrsta, Þjóðhátfðardag-
inn 2. ágúst o. s. frv. Ilátlðahöld þcssi fóru fram með samdrykkjum,
söngvum, dansleikum, og stundum jafnframt skrauteldum og blysförum.
Viðhöfnin við slík tœkifœri er sífellt að aukast. Mest kvað að slíkum
hátíðahöldum í Reykjavík, en þar næst á Akureyri.
Thorvaldsenshátíðin í Iíeykjavík var merkust allra slíkra
liátiða. pess er getið í fyrra árs frjcttum, að Kaupmannahöfn gaf íslandi
ifkneskju Thorvaldsens í minningu þjóðhátíðarinnar. Nú um haustið var
líkncskja þessi send til Reykjavíkur, og með lienni verkmeistari danskur
Dandtzer að nafni, er átti að koma myndinni fyrir á sinn stað. Mynd-
inni var markað svið á miðju torgi bœjarins, Austurvelli, og þar var hún
sett upp. Kring um hana voru ramgjörvar jámgrindur greyptar niður í
granítklöpp. Allur völlurinn var sijettaður, og markaður í sundur í 4
jafna ferhyrnda hluti, en milli þoirra voru gjörðar sandgötur, út frá mynd-
inni á alla vegu. Umhverfls allan völlinn var sottur steindur skíðgarður.
pessi umbúnaður á vellinum var gjörður á kostnað bœjaríns með umsjón
bœjarstjórnarinnar. Fyrst eptir það að myndin var sett upp, var hún
hulin. Til þess að afhjúpa hana var valinn 19. dagur nóvembermánaðar,
er var fœðingardagur Thorvaldsens, en frá fœðingu hans voru þá liðin
105 ár. pessi dagur var hátíðlegur haldinn með mikilli viðhöfn. Austur-
völlur var þannig prýddur, að umliverfis með öllum girðingnnum voru
stcngur reistar, og aðrar kringum líkneskjuna sjálfa. Utan um steng-
urnar var slöngvað lyngfljettum, og blómhringar festir á þær, en blæjur
og fánar blöktu á hverri stöng og húsunum i kring. Um kveldið var
allur Austurvöllur Ijómaður marglitum ljósum. Afhjúpun myndarinnar fór
fram um miðjan dag. Var þá fjölmcnni mikið komið saman á Austur-
velli, svo að þakinn var allur völlurinn. Klukkan 12 byrjaði hátíðarhald-
ið með því að hringingar dundu frá dómkirkjunni. pá hófst söngur og
var fyrst sungið eitt vers af kvæði, cr Steingrímur Thorsteinson hafði ort
í minningu tœkifœrisins. pá stje byskup Pjetur Pjetursson í rœðustól,
er reistur hafði verið þar á vellinum, og hjelt fagra rœðu um þýðingu
gjafarinnar og myndarinnar. pví næst var sungið það er eptir var
kvæðisins. pá stje landshöfðingi Hilmar Finsen í rœðustólinn og afhenti
myndina fyrir hönd gefandanna bœjarstjóminni í Reykjavík, og fal henni