Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Blaðsíða 127
127
Gunnarssonalækur (64) norður í Strípalón (65); þau eru mörg og
rennur Strípalónalækur (66) á milli þeirra og fellur ofan í Úlfsvatn.
Þar heitir hann Gilsbakkaá. Hún er í Borgfirðingaleitum. Austasta
Strípalónið heitir Grandalón (67). Mjótt eyði er á milli austustu lón-
anna, sem heitir Grandi (68). Þá vestra Grandalón (69), Tangalón (70),
Austara-Þórhalls-lón (71), Vestara-Þórhalls-lón (72). Við lónin er
skálatóft, sem heitir Lönaborg (73). Þar lágu varðmenn heilt sumar
til þess að fé Húnvetninga og Borgfirðinga gengi ekki saman, svo
fjárkláðinn bærist ekki norður. Að norðanverðu við lónin eru stór-
grýttar hæðir; heita þær Hraungarðar (74). Ná þær vestur í Hrút-
firðingaleitir. Fyrir austan þá er Skálatjörn (75). Fyrir sunnan og
austan hana er strýtumyndaður hóll, sem heitir Ketilsstapi (76). Norðan
við Hraungarða er Hólmavatn (77); úr því rennur Syðri-kvísl (78).
Fyrir austan Hólmavatn er hóll, sem heitir Stórhóll (79), en fyrir
norðan það er Dyshóll (80). Fyrir norðan Dyshól er Ytri-kvísl (8lX
í henni er lítið tón, sem heitir Kvikandi (82), Þar er oft mikill silungur
á haustin, og er nafníð komið af því. Á kvíslarbakkanum að norðan
er Halldórshóll (83). Hornmerki að sunnan milli Aðalbólsheiðar og
Núpsheiðar er Hávaðavatn (84). Renna Strípalón í það; heita svo
Gilsbakkaá, þegar þau renna úr því. Úr Hávaðavatnsósi eru merkin
beint norður yfir Hraungarða, um Fjölvörður (85) sjónhending í
Þorvaldsvatn (86). Úr því rennur Þorvaldsá (87) í Austurá. Skammt
fyrir sunnan Aðalbreið, sem er fremsti bær í Austurárdal, þar sem
árnar koma saman, heitir Ármótsbjarg (88). Framarlega við Þorvaldsá
er hár hóll, sem heitir Kast li (89). Neðar með ánni að austan er
Kaplabeinsurð (90). Fyrir norðaustan Dyshól eru margir hólar saman, sem
heita Þormóðshólar (91). Norðvestur af þeim er lítið vatn, sem heitir
Hólmavatn ytra (92). Norður af því er Tungukollur (93). Þaðan sést
norður til bæja og suður á leitamörk. Fyrir sunnan og austan Tungu-
koll er lón í Austurá, sem heitir Neðsta-lón (94). Kringum það eru
Neðsta-lóns-hólar (95); fyrir framan það er annað lón í Austurá, sem
heitir Stokkalón (96); í kringum það heita Stokkalónshólar (97). Á
móti Skriðuhvammi er lítil hóll; er sjálfgert byrgi upp á honum; heitir
það Lambabyrgi (98). Það eru stórir steinar, sem hallast hver upp a&
öðrum, og er hægt að skríða undir þá. Þar hefir grasafólk stundum
legið. Austan við Ármótsbjarg er lítið þvergil, sem heitir Klauf (99);
fyrir sunnan Klaufina, uppi á tungunni, er Brunkuhóll (100). Venju-
lega er allur vesturhluti heiðarinnar, frá Austurá að Þorvaldsá, kallaður
Tunga.
Benedikt Jónsson.