Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Blaðsíða 40

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Blaðsíða 40
40 vegagerð sent mér tilkynningu um fundinn og ekki vissi vegamála- stjóri neitt um hann. — En rétt eptir árslokin, laugardaginn 5. Jan- 1935, skýrði formaður sóknarnefndar á Sauðárkróki, Jón Þ. Björnsson, mér frá því, að í ráði væri að jarða þar í kirkjugarðinum næsta dag mannabein, sem fundizt hefðu sumarið áður á Höfðaströndinni, en réttara væri talið að grennslast eptir því áður, hvort mér væri kunnugt um þennan fund, og hvort ég vildi láta fara öðruvísi með hann. Ég óskaði þá eptir að fá beinin send til athugunar, ásamt fundarskýrslu, og til varðveizlu í Þjóðmenningarsafninu. Tíu dögum síðar komu beinin til safnsins og svo-hljóðandi skýrsla með: Síðastliðið sumar (1934), mánud. 3. september, voru nokkrir menn frá Sauðár- króki að vegargerð ofanundan Grafargerði á Höfðaströnd, innan við Hofsós. Tóku þeir ofaníburðarmöl á mel nokkrum sléttum og leirblöndnum. Fundu þeir þá leifar mannabeina þar á melnum. Beinin lágu svo nærri yfirborði, að eigi nam meiru en þverhandarþykkt: Höfuðkúpa, tvennir kjálkar, nokkur leggbein og önnur bein smærri. Hér um bil H/2—2 metra norðvestur af þessum beinum var stór þúfa, aflöng og gróin, hér um bil V2 metri á hæð og 2 m. á lengd. Var hún grafin upp, og fundust þar syðst leifar af hestbeinum. Lágu þau á melnum undir þúfunni. Um miðja þúfuna lá grjóthaft þvert yfir. En norðan við það fannst höfuðkúpa af manni, mjög fúin, kjálkaleifar, jaxlar og nokkrar aðrar beinaleifar. Lágu þessi bein undir þúfunni, og eigi á berum melnum, en torf eða grasrót virtist hafa verið undir þeim. Eigi urðu finnendur neins varir um leifar af áhöldum né neinum öðrum hlutum úr málmi né öðrum efnum. Fluttu þeir beinin til Sauðárkróks og afhenti verkstjórinn, Páll Jóhannsson, þau formanni sóknarnefndar þar. Að áliti læknis virðist í fyrri fundinum vera að ræða um leifar af stórum og sterk- legum karlmanni og (gamalli) konu. Seinni fundurinn virðist og vera af full- orðinni manneskju. Var beinanna minnst í sérstakri athöfn í lok guðsþjónustu í Sauðárkróks- kirkju i dag af sóknarpresti, sr. Helga Konráðssyni, og verða þau að ósk fornminja- varðar (Matth. Þórðarsonar) send næstu daga til Reykjavíkur. Sauðárkróki, 6. Jan. 1935. Jón Þ. V. Björnsson (formaður sóknarnefndar). Hér er um tvær dysjar að ræða; t annari hefir verið dysjaður karlmaður, en í hinni kona, og hestur hjá. Aðrir þeir kjálkar, sem taldir eru í skýrslunni fundnir með beinum karlmannsins, eru óheil- legir, og er brot af þeim meðal hinna fáu beina, sem fundust í norð- vestri dysinni og eru úr konu. Meðal karlmannsbeinanna eru engin kvenmannsbein, önnur en þetta óheillega kjálkabein, sem vafalaust er kvenmannskjálki, eins og læknirinn hefir álitið. — Sennilega hefir það farið í ógáti saman-við karlmannsbeinin eptir upptöku bein-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.