Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Side 44
IX.
YFIRLIT
YFIB SKIPUN GEISTLEGRA EMBÆTTA Á ísEANDI 1. NÓVEMB. 1879.
I inngangsorðum þeim, sem við ljetum fylgja 1. hepti
Kirkjutíðindanna, ráðgjörðum við meðal annars, að láta ritið
færa skýrslu um veitingu prestakalla og breytingar á skipun
prestakalla og kirkna. I stað þess að greina hjer þær breyt-
ingar, sem i þessu efni eru á orðnar síðan tíðindin fyrst komu
út, þykir okkur öllu hetur fara, og vera ljósara og fróðlegra
fyrir lesenduma, að skýra í einni heild frá skipun geistlegra
embætta hjer á landi, eins og hún nú er, seint á árinu 1879.
Höfum við því næst í hyggju, á meðan tiðindum þessum verð-
ur haldið áfram, að greina jafnóðum þær breytingar, sem á
verða, með skírskotun til þessa yfirlits*. f>ykir okkur slíkt
yfirlit, sem hjer er sett, eigaþví betur við í kirkjulegu tímariti,
sem landar vorir hvergi eiga kost á að sjá það annarstaðar en
í hinum danska »Statskalender«, sem aðeins mun vera i fárra
manna höndum hjer á landi. Yfirlit þetta er þó fyllra og fróð-
legra en það, sem »Statskalenderen« hefir, því að hjer er til-
greindur fæðingardagur geistlegra embættismanna hjá oss,
eptir því, sem þeir hafa sjálfir frá skýrt í æfisögum sínum, er
þeir vora vígðir; frá þessu er ékki vikið nema á einum eða
tveimur stöðum, þar sem vissa þótti fyrir, að annað væri rjett-
ara. Bn þess ber að geta, að með því æfisögur þessar era rit-
aðar á latínumáli, eptir fornri venju, sem nú reyndar virðist
kominn tími til að leggja niður, hafa margir einnig talið fæð-
ingardag sinn eptir rómverskum hætti; en það getur valdið
misskilningi, þar sem ekki er nægilega ljóst á kveðið, enda
jafnvel ekki ólíklegt, að sumum hafi ekki verið alls kostar lið-
ugt um að reikna eptir þessu tímatali, sem er flókið nokkuð
og villugjarnt. |>ar sem óvissa þótti vera í þessu efni, er það
sett, sem sennilegast virtist, en hin rómverska táknun i æfi-
sögunni sett í athugasemd neðanmáls. Fyrir stuttleiks sakir
*) Sem biskupsskrifari herra kandidat Magnús Andrjesson liefir góð-
fúslega samið fyrir okknr,