Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 76
124
hinum almáttka, sem yfir honum er, hinum heilaga
dómara, sem hann er orðinn brotlegur við, hinum ást-
ríka föður, er hann hefir snúið sjer frá. Æ, þökkum
Guði, að hann hefir frætt oss um það, hvað vjer erum;
vegsömum hann, og minnumst með blygðun eigi ein-
ungis lítilleika vors, heldur einnig eymdar vorrar, eigi
einungis þess, að vjer erum ekkert, heldur einnig þess,
að vjer erum alls góðs ómaklegir, og tökum undir með
sálmaskáldinu: „Hvað er maðurinn þess, að þú minnist
hans?“ Beygjum oss með óendanlegri þakklátsemi
fýrir hinum líknsama kærleika, sem í lítilleik vorum
og eymd hefir sýnt dýrð sína og hátign.
FÁEINAR NAFNA-SKÝRINGAR.
Alexander (bls. 120), kallaður „liinn konungur i Grikklandi,
frægastur allra konunga og herforingja í fornöld, f. 356 f 323 fyrir Krist.
Bossuet (bls. II2), kaþólskur biskup í Meaux á Frakklandi, hinn
ágætasti maður, talinn andríkastur og mælskastur ræðumaður á Frakklandi,
f. 1627 f 1704.
Caesar (bls. 120) hinn mildi rómverski hershöfðingi, stjórnspek-
ingur og rithöfundur, einhver af hinum mestu ágætismönnum með
Rómverjum fyrir flestra hluta sakir; veginn í ráðinu af samsærismönn-
um 15. Marts 44 fyrir Krist.
Celsus (bls. 108 og 114), heiðinn rithöfundur.heimspekilegamenntaður,
samdi árásarit gegn kristindóminum nál. i78eptirKr. (sbr. bls. 91 að framan).
Dahomeh. (bls. 118), svertingjariki í Suðurálfu.
Galilei (bls. 116), frægur náttúru- og stjörnufræðingur í Italiu;
fann ýms náttúrulög; setti saman, einhver fyrstur manna, sjónpípuna
(kíkir), og notaði hana við stjörnu-rannsóknir; hann hallaðist að hinni
nýju uppgötvun spekingsins Kópernikusar, að það væri jörðin, en eklci
sólin, sem væri á hreifingu ; þetta var þá talin trúarvilla, og varð G. að
sæta ofsóknum fyrir; var honum loks stefnt fyrir hinn illræmda rann-
sóknarrjett (Inkvisition), og þar varð hann að afneita þessari sannfæringu
sinni með eiði, til að forða lffi sinu; fædd. 1564 -j- 1642.
Friðrik Vilhjálmur Herschel (bls. 110), ættaður úr Hannover á þýzka-
landi, lifði í Englandi, f. 1738 ý 1822, einhver af frægustu stjörnufræð-
ingum síðari tíma; fann reikistjörnuna Uranus 1781; eptir bann eru