Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Blaðsíða 83
i3i
gefið á íslenzku eitthvert það rit, er glöggvast leiði í
ljós villu og viðurstyggð Mormónatrúar, og mundi að
minni ætlun bezt til þess fallið rit það, er John Ahman-
sohn danskur maður, er eitt sinn var Mormóni, hefir
samið, og nefnt „Múhamed vorra tíma“.
XII. ÁGRIP
af
æfi síra Jorkcls Arngrímssonar Yídalíns.
Síra þorkell Arngrfmsson var fæddur á Melstað
í Miðfirði 1629. Faðir hans var Arngrímur prestur
Jónsson, hinn lærði, sem kallaði sig Vídalín, af þvf
hann var fæddur í Víðidalstungu á norðurlandi og
uppalinn í Víðidal. Síra Arngrímur var lærð-
ur maður og vel metinn, bæði hjer á landi og erlendis.
Skrifaðist hann lengi á við Dr. Olaf Vorm, eins og
sjá má af brjefum hans, sem eru prentuð (Epistolae
Vormii). Hann var tvisvar skólameistari á Hólum, varð
síðan officialis í Hólastipti og aðstoðarmaður Guðbrand-
ar biskups, þá er hann tók að eldast. Síra Arngrím-
ur bjó fyrst á eignarjörð sinni Okrum í Skagafirði; varð
hann fyrst prestur að Miklabæ 1590, og hafði afgjald
af 7 jörðum Hólastaðar. Síðast var hann um mörg ár
prestur að Melstað, og andaðist þar 27. Júní 1647.
Hafði hann ári áður gjört grafskript eptir sig, og sent
hana Olafi Vorm, en hann ljet mála hana á trjetöflu.
Um lát hans skrifaði sira Einar Arnfinnsson á Stað f
Hrútafirði Olafi Vorm á þessa leið: „Eins og gamli
Simeon, uppi sitjandi í sæng sinni dó hann“.
Fyrri kona sfra Arngríms var Solveig, dóttir Gunn.