Lögrétta - 01.01.1936, Blaðsíða 2

Lögrétta - 01.01.1936, Blaðsíða 2
7 LÖGRJETTA 8 bókmentir og spænsk tíska í klæðaburði var ráðandi og náði jafnvel út hingað til Islands. Þetta sjest hjer til dæmis í Oflátungslýs- ingu Hallgríms Pjeturssonar, þar sem oflát- ungnum er m. a. lýst svo að „með stígvjel bæði og spora spanska, spennir út kálfa stinna, það er maður þó hann láti minna“. — Þetta er stutt, en alveg ágæt lýsing á nýj- ustu skófatnaðartízku þessara ára. Annars hefur eðlilega ekki verið mikið samband milli andlegs lífs á íslandi og Spáni, og kemur enda ekki þessu máli við, en þó má geta þess, að eitt af öndvegisritum spænskra bók- menta á 17. öld þýddi Eggert Ólafsson á íslenzku, lifnaðarreglur Gracians, en þær hafa aldrei verið prentaðar. Það er annars til marks um veg og veldi Spánar og andlegs lífs þar á þessum öldum, sem margir þekkja og haft er eftir Karli keisara V., að spænska tungu tala jeg við drottinn minn, frönsku við stjórnmálamenn, ítölsku við konur, en þýzku við hundinn minn. Á þessum stórveldistímum skapaðist sá hugsunarháttur yfirstjettanna á Spáni, sem síðan hefur verið stolt þeirra og þær hafa lifað á, einnig eftir að stórveldið var hrunið. Þá var einnig lagður grundvöllur að hinum miklu stóreignum aðals og kirkju, sem bar- ist hefur verið svo heiftarlega um hvað eftir annað í síðustu mannsaldra, svipaðri baráttu og þó varla eins mannskæðri og þeirri, sem nú geisar. Bourbonarnir komu til valda á Spáni árið 1700 og fyrst framan af 18. öldinni var Spáni stjórnað eftir stefnu hins upplýsta einveld- is, andkirkjulega, þannig að Jesúítum var vísað úr landi, og ýmsum frjálslyndislegum umbótum var komið á. I lok aldarinnar var komið á mjög frjálslegri stjórnarskipun, eftir franskri fyrirmynd, en eftir fall Napóleons, þegar Ferdinand VII. var Spánarkonungur, kom afturkippur afturhaldsins og endurreisn aðals og kirkjuvalds með ýmiskonar ofríki og óstjórn, sem olli vaxandi óánægju. Herfor- ingjarnir komu þá af stað uppreisn 1820 og neyddu konunginn til þess að koma aftur á frjálslegri stjórnarskipun, en þetta þoldu stórveldin ekki og franskur her greip í taum- ana, kúgaði hina frjálslyndu stjórn og endur- reisti einveldið, sem reyndist eins ilt þá og það hafði verið áður. Þegar Ferdinand dó urðu miklar deilur um konungserfðirnar milli Don Carlos og Isabellu og sigraði Isabella þar kirkjuna og hina íhaldssamari aðalsmenn og tók aftur við um tíma sæmilega frjálslynt stjórnarfar. En ekki stóð það lengi, og flokka- drættir hjeldu áfram og Isabella var rekin frá ríkjum 1868, en þeir, sem við tóku megn- uðu ekki að stilla til friðar og 1873 varð Spánn lýðveldi um stutt skeið, uns við tók Alfons XII, faðir Alfons XIII., sem nú er í útlegð, en ríkti til 1931, þegar Spánn varð lýðveldi í annað sinn. Þetta stutta sögulega yfirlit er nauðsyn- legt til þess að menn geti skilið þær viðsjár og þær stefnur, sem mest ljetu til sín taka á síðustu árum konungdæmisins og á þeim lýðveldisárum, sem liðin eru, því að borgara- styrjöldin, sem nú geisar, er sögulegt áfram- hald af þessu. Konungdæmið á Spáni var í raun og veru búið að vera með einræði Primo de Rivera. Sú einræðisstjórn hafði að vísu beitt sjer af góðum vilja fyrir ýmsum framförum og kom reglu á ýmsa hluti, sem áður voru í óreglu, en hún var einræn og stirð og hún hafði orðið til með stjórnlagarofi. Þess vegna varð hún til þess að hrinda frá konungdæminu jafnvel ýmsum gömlum hægri- eða íhaldsleiðtogum, s. s. Zamora, og jafnvel foringi hægrimanna Sanchez Guerna gekk opinberlega í berhögg við konunginn. En einkum bar mikið á frá- fallinu frá konungdæminu meðal menta- manna og rithöfunda. Ekki einungis Una- muno, sem var þektastur þeirra allra, heldur margir yngri menn gerðust nú lýðveldissinn- ar. Meðal þeirra er helstur Ramon de Valle Inclán, sem t. d. í sögunni Tirano Banderas hvatti beinlínis til uppreisnar og skrifaði einnig sagnabók með háðulegum lýsingum á hirðlífinu. Einhver skemtilegasti og fjölhæf- asti rithöfundur Spánar, Azorín, og alkunnur blaðamaður við eitt helzta málgagn konungs- sinna í Madrid, gerðist einnig lýðveldissinni 1930. 1 einni helztu sögu sinni, sem heitir Alþýða, boðaði hann nýja framtíð og frelsi Spánar í sameiningu verkamanna handar og heila, og de Ayola, höfundur sögunnar Belarmino og Apolonio, sem af mörgum er Frh. á bls. 161.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.