Lögrétta - 01.01.1936, Side 89

Lögrétta - 01.01.1936, Side 89
181 LÖGRJETTA 182 koma út á dönsku (Vor Tids Verdenshistorie) en einhver besta Evrópusaga, sem skrifuð hefur verið um langt skeið er á ensku, eftir Fisher (A History of Europe). Meðal stórra þýddra minningabóka er Visdommens Syv Söjler eftir Lawrence, hinn fræga Arabíu- Lawrence. Sjálfstæði íslands 1809, eftir Helga P. Briem. Þetta er stórt og merkilegt sagnarit, sem segir frá Jörgensensæfintýrinu hjer á landi í byrjun 19. aldar, og er margt dregið þar fram, sem varpar nýju ljósi yfir viðburði þeirra tíma og menn þá, sem mest koma þar við sögu. Hefur töluvert verið ritað áður um þessi mál á íslenzku, en höf. hefur sótt nýtt efni í handrit, sem geymd eru í British Muse- um í Lundúnaborg. Jeg er ekki að rita nýja sögu • Jörundar hundadagakonungs, segir hann í formálanum. Það hefur verið gert áður, bæði í bundnu máli og óbundnu. Rit þetta er tilraun til þess að rekja sögu hins skammvinna lýðveldis á íslandi á árinu 1809 og meta það, hvernig menn brugðust við því innanlands og utan, en sögu Jörgensens ein- göngu að því leyti, er hún snertir sögu lýð- veldisins. Það er kenning höf., að ísland hafi þann stutta tíma, sem Jörgen Jörgensen ríkti hjer, verið fullvalda lýðveldi, og færir hann marg- ar og skýrar röksemdir fram fyrir þeirri skoðun sinni, hvað svo sem lögfræðingar og ríkisrjettarfræðingar síðar kunna að segja um þetta, þegar til þeirra kasta kemur. Eng- inn hefur enn sem komið er látið neitt uppi um það. En til stendur, að höf. verji þetta rit sitt fyrir doctorsnafnbót hjer við háskólann innan skams. Það er þó ekki lögfræðisdeild háskólans, sem um það á að fjalla, heldur heimspekideildin, svo að það verður sagn- fræðilegt gildi ritsins, sem um verður dæmt, en ekki lögfræðilegt eða rjettarfræðilegt gildi þess. Rit þetta varpar, eins og þegar er sagt, nýju ljósi yfir framkomu Jörgens Jörgensen og enskra kaupmanna hjer á landi á ófriðar- árunum í byrjun 19. aldar. Sá ófriður snerti ísland á annan hátt en heimstyrjöldin mikla, rúmum hundrað árum síðar, að því leyti, að þá var Danmörk ófriðaraðilji gegn Englandi, en í heimsstyrjöldinni hlutlaust land. Á báð- um þessum ófriðartímum lá þó nærri, að Is- land yrði skilið frá Danmörku, og eftir því, sem Helgi P. Briem lítur á málið, hefur sá skilnaður verið fullkominn 1809, þótt aðeins yrði um stundar sakir. Jörgen Jörgensen, eða Jörundur hunda- dagakongur, eins og hann hefur að jafnaði verið nefndur hjer á landi, hefur alt fram til þessa hlotið ill og niðrandi ummæli í íslenzk- um ritum. I Jörundarsögu dr. Jóns Þorkels- sonar ríkisskjalavarðar er ekki gert mikið úr honum, og í raun og veru ekki heldur í kvæði því, sem Þorsteinn skáld Erlingsson kvað um hann og gerðir hans hjer á landi. I leikriti Indriða Einarssonar, sem sýnt var hjer á síð- astliðnu ári, er hann fyrst látinn koma fram sem glæsilegur maður með fullri meðvitund um ætlunarverk sitt. Og í þessu nýja riti hr. Helga P. Briem, sem flytur langfylstar og beztar heimildir um veru hans hjer á landi, kemur Jörundur fram sem bæði glæsilegur og gáfaður æfintýramaður, sem vill íslenzku þjóðinni alt hið bezta. Hvort hann hefur ver- ið hjer fulltrúi enskra valdamanna, sem ýmis- legt virðist benda til, eða enskir kaupmenn, sem hjer höfðu verzlun, hafa skákað honum fram til þess að vinna land undan ríki, sem átti í ófriði við England, vita menn ekki, og úr því er ekki skorið í þessu riti. En þar eru margar nýjar upplýsingar um afstöðu ein- stakra íslenzkra mann til hans, og mesti og voldugasti maðurinn hjer á landi á þessum tímum, Magnús Stephensen konferenzráð, kemur fram í öðru ljósi í þessu riti en í þeim ritum öðrum, sem mjer eru kunnumþessimál. Höf. á lof skilið fyrir þetta verk sitt. Tvö sagnarit, eftir dr. Jón biskup Helgason, hafa birzt nú síðustu missirin, hið fyrra um Hálfdán Einarsson skólameistara á Hólum, og kom það út fyrir ári síðan, en hið síðara um Hannes biskup Finnsson, síðasta biskup í Skálholti, og kom það út síðastliðið sumar. Fyrir það hefur Háskólaráðið hjer sæmt höf- undinn verðlaunum af „Heiðurssjóði Ben S. Þórarinssonar. “

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.