Lögrétta - 01.01.1936, Blaðsíða 21

Lögrétta - 01.01.1936, Blaðsíða 21
45 LÖGRJETTA 46 tala en það, hve ferðalagið hjerna 1907 hefði verið skemtilegt. Síðasti áfangastaðurinn var á Kolviðar- hóli, og þar var það sem konungur mintist í ræðu á ríki sín tvö og gerði samanburð á þeim. En ekkert veit jeg, hvort það er sann- leikur eða ekki, sem þá flaug um, að I. C. Christensen forsætisráðherra hefði á eftir tekið hann á eintal og mint hann á, að ein- mitt þetta væri hið óútkljáða deilumál milli landanna. Eftir nokkurra daga dvöl í Reykjavík að landferðinni lokinni, sem eitt var í stöðug- um veizluhöldum, hjelt konungur og fylgdar- lið hans á skipum sínum norður um land. Fylgdi ráðherra fslands honum alt til þess, er hann lagði frá landi á Seyðisfirði. Var almenn ánægja yfir því hjer á landi, hve konungsmóttakan hefði vel tekist, og smá- vegis aðfinslur í blöðum stjórnarandstæðinga eftir á um óþarfa eyðslusemi og íburð fengu enga áheyrn. í einhverju danska blaðinu var förin kölluð „Bakkustoget mod Nord“, og í öðru man jeg eftir grein frá einhverjum, sem ekki var það ljóst, að fjárhagur Dan- merkur og íslands væri með öllu aðskilinn, og skaut hann því að dönskum bændum, að þeir ættu nú að þramma á trjeskóm sínum til tollheimtumanna sinna með aukna skatta til þess að ráðherrafrúin á íslandi gæti geng- ið á gullskóm. En nú stóð Hannes Hafstein á hátindi frægðar sinnar og álits. Sambandslaganefndin, sem konungur hafði skipað, eins og til stóð, meðan hann dvaldi í Reykjavík, fór til Kaupmannahafnar í febrúar 1908 og sat þar að störfum fram í maí. Hannes Hafstein hafði ætlast til þess, að í nefndinni sætu 3 menn úr stjórnar- flokknum, 2 úr sjálfstæðisflokknum og 1 úr landvarnarflokknum, en hann var sjálfkjör- inn. Landvarnarflokkurinn átti aðeins einn mann á þingi, Sigurð prófast Jensson í Flat- ey. En nú vildi flokkurinn fá að hafa bræðra- skifti, setja formann sinn, Jón Jensson yfir- dómara, í nefndina, en með því að hann átti nú ekki sæti á þingi, en nefndin átti að vera skipuð alþingismönnum og ríkisþingsmönn- um, fjekst þetta ekki, og vildu þá landvarn- armenn engan nefna til í nefndina. Stjórnar- flokkurinn bauð þá sjálfstæðismönnum, að nefna til þrjá fulltrúa, en tók það fram, að hann gerði ráð fyrir, að þeir dr. Valtýr og Skúli Thoroddsen yrðu báðir fyrir valinu. En dr. Valtýr vildi ekki taka sæti í nefndinni og bar því við, að hann væri danskur embættis- maður. Þessir urðu í nefndinm úr stjórnar- flokknum: Jón Magnússon, Lárus H. Bjarna- son og Steingrímur Jónsson sýslumaður. En úr sjáifstæðisflokknum: Skúli Thoroddsen, Jóhannes Jóhannesson sýslumaður og Stefán Stefánsson skólameistari. Frá Dana hálfu sátu 12 menn í nefndinni, auk forsætisráð- herrans, I. C. Christensen, sem var sjálf- kjörinn, eins og ráðherra Islands. Meðal þeirra voru lögfræðingarnir Matzen og Goos. Ritarar nefndarinnar voru þeir Knud Berlin, sem síðar varð hjer alkunnur maður, og Magnús Jónsson, síðar ráðherra hjer og laga- prófessor. Hjer er enginn tími til þess að minnast á skjöl þau, sem fram komu í nefnd- inni frá beggja hálfu, enda eru þau prentuð í sjerstöku riti og öllum aðgengileg. Hjer heima biðu menn með óþreyju og eftir- væntingu allra fregna frá Kaupmannahöfn. — Snemma í maí kom loks fregn um, að samn- ingar hefðu tekist. Jón Magnússon símaði Lögrjettu, að árangurinn væri góður, og dr. Valtýr símaði Isafold, að samkomulagið væri í samræmi við Þingvallafundinn 1907. Þess- ar fregnir flugu um og voru í hvers manns munni. En svo kom skeyti til landvarnar- blaðsins Ingólfs og sagði, að Skúli Thorodd- sen hefði gert ágreiningsatkvæði og að upp- kastið væri með öllu óaðgengilegt. I nokkra daga vissu menn ekki, hverju trúa skyldi. En þá kom skilaboð til allra blaða í bæn- um úr stjórnarráðinu og var sagt, að upp- kastið hefði verið símað þangað í heilu lagi og orðrjett, og gætu blöðin fengið að sjá það þar og taka afrit af því. Björn Jóns- son hringdi þá til mín og spurði, hvort jeg gæti ekki fengið skeytið ljeð í stjórnarráð- inu og sýnt sjer það. Svo mætti kalla á blaðamennina og allir gætu skrifað það af í einu, en einn læsi fyrir. Jeg fjekk skeytið og þetta gekk alt vel. Var glatt á hjalla meðan á þessu stóð og Björn var hinn kátasti. Sambandslagauppkastið er svo merkilegt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.