Lögrétta - 01.01.1936, Síða 67
137
LÖGRJETTA
138
uppvexti sínum. Á fullorðinsárunum byrjaði
að bera á trúarofstæki í honum en jafnframt
á drykkjuskap og þunglyndi. Þegar þessi
köst komu yfir hann, hætti hann allri vinnu
en settist við biblíulestur.
Haustið 1832 byrjaði hann að prjedika á
götum úti, og heimtaði þá að menn rjeðust
á spunaverksmiðjur þær, sem á þessum
árum risu upp og stóðu í miklum blóma.
Sagði Felix Egli að þær eyðilegðu líf lands-
búa og væru auk þess guði mjög á móti skapi.
Þann 22. nóvembermánaðar þetta haust gat
hann safnað saman stórum flokki karla og
kvenna, sem hjelt undir forustu Egli’s til
þorpsins Uster, þar sem stærstu spunaverk-
smiðjurnar voru. Fólkið bar alt stórar byrð-
ar af hálmi og viðarull, sem það kastaði inn
í verksmiðjumar eftir að hafa brotið allar
rúður með steinkasti. Þessu næst var eldur
lagður að hálminum og kveikt í, svo að verk-
smiðjurnar brunnu til kaldra kola og nam
eignatjónið svo hundruðum þúsunda franka
skifti.
Þegar hjálparlið kom á vettvang til að
bjarga einhverju úr verksmiðjunum eða til
að slökkva eldinn, þá rjeðist Felix Egli á það
í broddi fylkingar með rýting að vopni og
geigvænlegum hótunum, svo að engri björg-
un varð við komið.
Þegar málið kom fyrir rjett sór Egli og
sárt við lagði, að hann hefði nokkurntíma
tekið þátt í íkveikjunni eða átt nokkra sök
á henni. Var hann dæmdur í 24 ára þrælkun-
arvinnu og samverkamenn hans í 8—18 ára
betrunarhús. En dómur þessara manna, sem
síður voru álitnir glæpamenn heldur en of-
stækisfullir trúmenn eða vitfirringar, mæltist
almennt svo illa fyrir, að hann varð að póli-
tísku flokksmáli og stjórninni að falli. Sjö
árum eftir brunann var brennumönnum öll-
um gefið aftur fult frelsi.
Annar fulltrúi trúarlegs ofstækis var gagn-
mentaður maður, prestur, Bernhard Hirzel að
nafni. Hann var fæddur 1807 og stundaði nám
í Ziirich, Berlín og París. Auk guðfræðinnar
stundaði hann austurlandamál og þá einkum
Sanskrit. Hann giftist þegar á stúdentsárum
sínum, en hjónabandið varð óhamingjusamt.
Hann varð dósent í Ziirich í Austurlanda-
málum, en stundaði kensluna illa og varð
að láta af embætti. Árið 1837 varð hann
prestur í sveitaþorpi því, sem Pföffikon
heitir.
Hirzel var eldlegur ræðumaður og í upp-
hafi frjálslyndur, en óhamingjusamt hjóna-
band og ýms önnur óhöpp í lífi hans breyttu
afstöðu hans og gerðu hann trúheitari og
íhaldssamari en áður. Frægur varð hann útaf
Strauss-málinu alkunna. Um 1850 var þýzkur
guðfræðingur og heimspekingur, Jóhann
David Strauss að nafni, ráðinn kennari við
háskólann í Ziirich. Strauss hafði meðal ann-
ars skrifað bók um líf Jesú, þar sem hann
heldur því fastlega fram, að Jesús hafi verið
manns en ekki guðs sonur. Þessi bók vakti
mikla eftirtekt, en einnig mikla gremju meðal
strangtrúaðra Þjóðverja og þeirra, sem
þýzka tungu töluðu. Bernhard Hirzel var einn
þeirra manna, sem ekki gátu liðið kenningar
Strauss, og er hann frjetti af embættisveit-
ingunni, ljet hann safna liði víðsvegar um
bygðir kantónunnar þann 5. september 1839.
Sjálfur lá hann allan daginn á bæn og fram
á miðnætti, en þá ljet hann hringja klukk-
um til merkis um það, að liðið skyldi halda
af stað til Zurichborgar. Þarna voru saman
komnar nærri tíu þúsundir manna, vopnaðir
með lurkum, heykvíslum, járnteinum, ljáum
og eldhússkörungum, og sem hjeldu nú til
borgarinnar syngjandi sálma og önnur and-
leg ljóð.
I bardaganum við lögregluna og herlið
borgarinnar sigraði lið Hirzel, nokkrir menn
fjellu og þar á meðal einn af ráðherrunum.
Stjórnin sagði af sjer og Hirzel komst nú til
vegs og valda. En ógæfan hvíldi yfir honum
eins og áður. Ósiðsamlegt líferni varð til þess,
að hann varð að segja af sjer, tók hann þá
aftur við dósentsembættinu við Zurichháskól-
ann, en það varði ekki nema skamma stund,
því þá varð hann ástfanginn í ungri stúlku,
sem hann vildi giftast, en fjekk ekki skilnað
frá konunni. Þá stal hann peningum, flýði
með stúlkuna til Parísar og skaut þar bæði
sjálfan sig og hana árið 1847.
En þrátt fyrir ýms afglöp leiddi þetta upp-
þot Hirzels til góðs fyrir íbúa sveitanna. Þeir
voru með þessu búnir að brjótast undan oki
og yfirráðum Zúrichborgar og hafa frá þeim
degi stjórnað málum sínum sjálfir.