Lögrétta - 01.01.1936, Qupperneq 88

Lögrétta - 01.01.1936, Qupperneq 88
179 LÖGRJETTA 180 ungs listamanns í baráttu hans fyrir lífinu. Ágætar ættarsögur eru bækurnar um Gollanz- fólkið eftir Naomi Jacob, og eru nú til á dönsku. Eftir einn helsta höfund Rússa, Boris Pilnjak, er þýdd sagan: Volga rinner mot Kaspiska havet, lýsing á hruni hins gamla þjóðfjelags keisaradæmisins í Rúss- landi. Bækur D. H. Lawrence eru nú einnig þýddar t. d. Sönner og Elskere. Af nýjum þýskum skáldsögum má nefna Stunden im Garten eftir H. Hesse, Die Liebe alt wie die Welt eftir R. Seitz og Miitter eftir Waggerl. Meðal franskra höfunda, sem hjer eru dálítið þektir, er P. Benoit og er nýkomin eftir hann sagan Saint-Jean d’Acre. Af enskum höf. hefur Rob. Graves verið lesinn hjer nokkuð og sögur hans um Claudius og um Messalínu eru nú þýddar á Norðurlandamál. Hann hefur nú einnig skrifað nútímasögu: Antigua Penny Puce. Nýr enskur höf. er Ralph Bates, sem skrifað hefur sögur frá Spáni, síðast The Olive Fields, sem er lýsing á bændauppreisn og baráttu kommúnisma og kaþólskrar trúar um yfirráðin yfir fólkinu. Eftir H. D. Lawrence er komið nýtt bindi: Phoenix og T. S. Eliot hefur safnað kvæð- um sínum í nýtt bindi. Hann hefur haft mikil áhrif í enskumælandi löndum og sjer- staklega eru ýmsar ritgerðir hans merkileg- ar. Eftir eitt af ungu skáldunum í Englandi, og eitt af þeim helstu, Auden, er komið nýtt kvæðasafn. Auden ferðaðist allmikið hjer á landi í sumar sem leið og mun hafa bók í smíðum um það ferðalag. Eitt einkennileg- asta ljóðskáld Englendinga á seinustu árum er A. E. Housman, sem ekki hafði þó gefið út nema tvær Ijóðabækur. Hann er nú dáinn fyrir skömmu og hefur nú verið gefin út þriðja bók hans (More Poems) með mjög þýðum og fallegum smákvæðum. Úrval af kvæðum Robert Frost, ágæts Kanadaskálds, er einnig komið út. Meðal nýlegra norrænna kvæðabóka má nefna Lykkeskillinger eftir Axel Juel, eitthvert besta ljóðskáld Dana, og Mod den yderste Rand eftir Tom Kristen- sen. Sögurit og minningarbækur. Lloyd George heldur áfram að skrifa end- urminningar sínar frá ófriðarárunum og eru þær einnig að koma út á dönsku, nokkuð styttar. 1 síðasta bindinu ræðst hann all- hart að Haig lávarði, yfirhersnófðingja Breta og finnur herstjórn hans og stefnu margt til foráttu og hefur fyr en þarna verið grunt á því góða með hershöfðingjum og stjórn- málamönnum heimsstyrjaldarinnar. Þó kveð- ur við alt annan tón í þeirri æfisögu Haigs, sem nú er einnig nýkomin út, eftir Duff Cooper, (sem nú er hermálaráðherra Breta), og áður hefur skrifað ágæta bók um Talley- rand. Hann lofar Haig mikið fyrir mann- kosti hans og dugnað og eignar honum fyrst og fremst sigur Bandamanna. Æfisaga Bal- fours jarls eftir Blanche Dugdale er einnig nýkomin, en Balfour er einhver merkilegasti stjórnmálamaður Breta á síðustu áratugum. Æfisaga Jellicoe lávarðar, hins fræga flota- foringja, er einnig nýkomin. G. K. Chester- ton var lesinn hjer af allmörgum, einkum sögur hans um Father Brown. Nokkuru áður en hann dó hafði hann skrifað endurminn- ingar sínar og segir þar margt skemtilegt frá sjálfum sjer og ýmsum þeim, sem hann kynstist. William James, hinn frægi heim- spekingur, var hjer einnig mikið lesinn um eitt skeið, einkum bók hans um ýmsar teg- undir trúarreynslunnar. Um hann og kenn- ingar hans er nýkomið út stórt og mikið rit eftir R. B. Perry (The Thought andCharacter of W. J.). Þýzkt forlag (Phaidon í Wien), sem gefið hefur út ýms ódýr, en falleg og myndskreytt sögurit, hefur nýlega gefið út allstóra bók um Diirer, eftir Waetzold. Þeir, sem tónlist iðka hefðu sjálfsagt ýmsir gaman af því að lesa brjefasafn Busonis, sem kom út í sumar og lesendur Arnolds Bennett’s, sem hjer eru allmargir, mundu líka geta skemt sjer við það, að lesa brjefasafn hans, sem nýlega kom út. Bruce-Lockhart er skemti- legur enskur höfundur, sem í tveimur minn- ingabókum hefur sagt fróðlega og fjörlega frá veru sinni í Sovjet Rússlandi og í ýms- um stórborgum Vesturlanda eftir stríðið („Aabenhjerlige Erindriger“ og „Dagene der- paa“) og skrifaði síðast ferðabók frá Malaja. Þýskur höfundur, H. R. Madol hefur skrifað skemtilega bók um Kristján IX. „tengda- föður Evrópu“. Ný stór mannkynssaga er að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.