Óðinn - 01.01.1921, Síða 69

Óðinn - 01.01.1921, Síða 69
ÓÐINN 69 Hvelflng skal flýja himins til skýja! Ljómandi sjái loftsærinn blái Ijúflegar inn! Bólstrarnir blökku byrgist í unnum! Stjarnljósin rökku, roöi af sunnum kyssa nú kinn. — — Vínlækir beinum bugðast á reinum, dansa á hreinum dýrindissteinum o. s. frv. í Ijóðum Bjarna sakna menn oft tilfinningaþunga og vafalaust mun ýmsum þykja, að sum eintöl Fausts hafi mist nokkurs við í þýðingunni; nefni jeg þó t. d. tileinkunina að »Faust«, þar er þetta erindi: Nú mega þeir ei mínum óði hlýða, þeir menn, sem fyrstu kvæðin þágu að mjer, því tvistruð er nú fylking sú, hin fríða, og fyrsta bergmál söngs mins dáið er. Nú hlustar á mig ókunn mergðin lýða, um önd, við lofið jafnvel, hrollur fer. Og þeim, sem annars Ijóð mín fyrrum leyfðu og lifa kunna, forlög víða dreifðu. Benda má og á þá staði, er betri eru í þýð- ingunni en í frummálinu og er slík leit skemti- legri en að fetta fingur út í smávægileg atriði, enda mun óhætt að segja það, að fáum skáldritum í bundnu máli hafi verið snúið svo á íslensku, að þýðingin hafi yfirleitt jafnast við frumtextann. Jeg nefni t. d. viðtal þeirra Faústs og Mefisto- felesar, er þeir þjóta áfram á svörtum hestum hjá Hrafnasteini, þar sem aftaka Margrjetar á að fara fram næsta dag: Faust: Hvað hreyfist og dreifist við Hrafnastein? Me/istofeles: Veit ei, hvað þær sjóða og seiða. Faust: Hefjast hátt, líða lágt, hneigja sig, beygja sig. Mefislofeles: Sjálfsagt seiðkonur. Fausl: Bær hræra og særa. Mefistofeles: Við hleypum hjá (bls. 266) Þýskir bókmentafræðingar, er islensku kunna, hafa lokið upp einum munni um það, að þýðing Bjarna sje meistaralega gerð og þótt ælla megi, að þeir geti ei dæmt um viðkvæmustu hræringar málsins, má þýðandanum þykja vænt um dóm þeirra, einkum er serbnesk þýðing á »Faust«, er nýlega er komin út, hefur hlotið ómilda dóma þýskra sjerfræðinga. A. J. Augun með svörtu blettunum. Augun tala enn um vor og átján sólarbletti; ætli þau beri ekki spor eftir freyjuketti? — Fnjóskur. Guðmundur Gunnlaugsson. Hann kom hingað í Kennaraskólann haustið 1908, og hafði þá tvo um tvítugt (f. 13/e — ’86). Jeg man hvað hann gekk i augun á mjer þegar í fyrsta áliti, hár og þrekinn, breiður um brjóst og herðar, mikilleitur og þó vel farinn í andliti, tal- aði seint og skýrt, en út úr bláum augunum skein góðmannleg greind og festa. Svo var og öll framganga og limaburður, föst og fum- laus. Undir eins og hann sagði til nafns síns, kann- aðist jeg við hann, því að umsókn hans um skólann hafði verið svo einkenni- lega vel skrifuð, höndin jafn traust og látlaus eins og hún var forkunnar falleg. Hann var frá Haf- ursstöðum í Axarfirði. Sá bær stendur einn sjer, langt fram frá meginbygðinni, að austanverðu við Jökulsá, og er næsti bær við Dettifoss þeim megin, nærfelt miðja vega milli hans og Ásbyrgis. Slíks var von — hugsaði jeg, er jeg virti fyrir mjer þenna föngulega fjallasvein. — »Vaxinn eins og björkin upp af bergi, barin veðrum, nærð á tjalla- mergi« — svo sem Grímur kemst að orði um Heming Á'laksson — ósvikinn íslenskur bóndason eins og fornsögurnar lýsa þeim. Hann var í 1. bekk um veturinn. Fleirum hefur líklega lilist á hann líkt og mjer, var hann kos- inn umsjónarmaður í bekknum. Það hefur að vísu aldrei verið mikil vandastaða, en það voru ekki heldur misfellurnar á benni í það sinn. Náms- maður var hann ágætur; fjekk við vorprófið ágætis einkunn i 8 greinum af 12, þar á meðal í íslensku bæði munnlegri og skriflegri. Ekki hafði hann sig mikið frammi í skólalifinu um veturinn, en gengið var úr skugga um það i glimufjelaginu að hann liafði krafta í köglum. Af nokkrum atvikum, er komu fyrir hann um veturinn, utan skóla, urðu kynni okkar meiri en ella. Öll staðfestu þau fyrsta álit mitt á honum, framkoman einlægt söm við sig, góðgjarnleg, yfirlætislaus karlmenskuró í orð- um og atböfnum og brá fyrir kímnisbrosi að eins, þar sem mjer fanst von til aö honum sárnaði eða þætti fyrir. Annars hafði jeg ekki þá veitt þvi eftir- tekt, að kímni var allríkur þáttur í skapi hans, Guðmundur Gunnlaugsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.