Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Page 13

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Page 13
77 fratn með 59. mælist. norðurbreiddar frá Orkneyjum til 30. mælist. fyrir vestan Greenwich eður á 900 sjómílna breidd er hiti sjávarins við hafflötinn jafn, og jafnvel í hærra lagi, og að hann dregst eður streymir greini- lega i norður; að heiti yfirborðssjórinn, vegna straums þessa, kemst, án verulegra breytinga á hitanum, upp undir suðurströnd íslands, og berst þaðan bæði til norð- austurs fram með suðausturströnd íslands, og einnig til norðvesturs, og seinna til norðurs inn í Grænlands- haf fram með vesturströnd íslands; að fram með aust- urströnd Grænlands fari aptur á móti frá norðaustri til suðvesturs kaldur straumur, fullur af rekaís, í gegnum Grænlandshaf alla leið suður að Hvarfi á Grænlandi, og að þessi ísstraumur verði stundum svo öflugur og mikill fyrirferðar, að hann nær alveg upp að norðvest- urstönd íslands, og fyllir firðina þar með ís, en að hann aldrei, ekki einusinni á vetrum, komist inn á Breiða- fjörð eður Faxaflóa. þar eð straumurinn fyrir norðan ísland liggur til austurs, og opt ber mikið af Græn- landsís með sér, er skemmri eður lengri tíma liggur fyrir allri norðurströndinni, hefir „Aðmiral" Irminger einnig álitið, að straumur þessi yrði helzt að álítast grein hins mikla ísstraums Austur-Grænlands, er neydd- ist til svo sem nokkurs konar iðukast að fara austur með Norðurlandi, er hann rækist á þann hluta af norð- vesturströnd íslands, er snýr út að íshafinu. Aðrir visindamenn, er fengizt hafa við þetta efni, hafa i öllu verulegu verið Irminger sammála, og álitið (prófessor Colding), að heiti straumurinn, er fer norð- ur með vesturströnd íslands beygi smátt og smáttyfir i hinn kalda ísstraum við norðvesturströnd Islands, þar sem Grænlandshaf er mjóst, og snúi aptur með honum til suðvesturs, og hafa menn því hingað til ætlað, að ísstraumurinn kaldi væri einvaldur við norðurströnd

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.