Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Blaðsíða 51
IIS
dómar Keltanna1, sem áttu að vera elztir allra þjóða;
en menn eru fyrir löngu gengnir úr skugga um, að
þessar ímyndanir eru alveg rangar; sama héldu menn
um Bretlandseyjar. Á írlandi er stórkostleg steindys
nálægt Drogheda, 20 feta há undir lopt; moldarhaug-
urinn yfir henni er 35 álna hár; dysin er bygð í kross
og steinamir mjög haglega lagðir. Fleiri dysjar eru
þar eins stórar.—Venjulega eru dysjarnar bygðar ofan
á sjálfum jarðveginum; samt eru sumar nokkuð grafn-
ar í jörðu niður.
Vér getum gjört oss hugmynd um, hvernig þess-
ar fomþjóðir hafi farið að ráða við þessi stórbjörg, ef
vér skoðum aðferð þeirra þjóða, sem enn eru uppi og
enga hugmynd hafa um neina mentun né framfarir
heimsins, og mega því heita villiþjóðir. Steinaldar-
mennirnir hljóta að minnsta kosti að hafa staðið þeim
jafnfætis. Á fjöllum nokkrum á Indlandi er villiþjóð sú
erKasí2 heitir; þessi þjóð þekti altfram að 1850 eng-
in önnur vopn en boga og örvar, þar sem margar villi-
þjóðir hafa fengið sér byssur löngu fyr. Kasíarnir dysja
sína dauðu enn í dag á sama hátt og steinaldarmenn
gjörðu. þeir kljúfa björgin með því að höggva í þau
holur og skálar, leggja eld í holurnar þangað til bjarg-
ið er orðið heitt, þá hella þeir köldu vatni á. þ>eir
nota kviktré og lyptistengur og flytja steinana þannig,
en þekkja engin önnur meðöl, hvorki hjól né æki.
Dysjarnar eru svo stórkostlegir og höfðinglegir
minnisvarðar, að það er óhugsandi, að höfundar þeirra
’) Hofgoðar Keltaþjóðanna hétu Drúídar. Keltar áttu fyrrura heiraa
víða i Evrópu, og eru enn til vestan áFrakklandi, í Wales á Eng-
landi, og á írlandi og Skotlandi, en eru þó töluvert orðnir ólíkir
forfeðrum sínum.
2) Einnig ritað Kassi, Kassia, Khassia, Khassija, Khassiyas, Cossya,
Cossea, Kassai.
8*