Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Page 21

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Page 21
85 Bardenfleth gjörir athugasemd við sjávarhitann í töflu þessari, sem vert er að athuga; hann segir: „J>að er eigi ólíklegt, að hinn mikli ís, er hafði þakið allan sjóinn fyrir norðan ísland fáum dögum áður en mælingin fór fram, hafi kælt sjóinn nokkuð, og að hann því muni reynast heitari (á þessum tíma ársins), þá er eigi er ísár, eður þá er ísinn ekki liggur fram á sumar“. Af töflum þessum og mælingum verður nú fyrst ljóst, hve grunt Grænlandshaf er, og hve ervitt er að kanna það Grænlandsmegin, einkum vegna íssins, er optast bannar mönnum að komast að austurströnd Grænlands, og þar næst má álíta það fullsannað, að heiti straumurinn, er fer norður með Vesturlandi, er ekki að eins ofan á og kaldur sjór undir, eins og reyndist á Vöringen að eiga sér stað í íshafsdjúpinu milli íslands og Noregs, heldur lieíir heiti straum- urinn í Grræulandshafi alveg yflrráðin alt til hotns íslandsniegin og talsvert út frá því, og kaldi straum- urinn hefir yfirráðin Grænlandsmegin einnig til botns; að mjög skamt er á milli hins heita og hins kalda sjávar, eður að millibilið milli hinna gagnstæðu strauma er furðu lítið. Samt leitar kaldi sjórinn undir hinn heita straum. En rannsóknir Fyllu 1877 sýna einnig (tafla III. og IV.), að kaldi sjórinn var bæði undir og ofaná heita sjónum næst ísnum (sjá lóðr. línurnar Nr. 19 og 27), og sýnist hinn kaldi sjór þannig ytzt við ísinn að halda hinum heita straumi í köldum faðmlögum sínum; Hklegt er, að hin köldu lög sjávarins efst og neðst nálgist hvort annað meir og meir, því nær sem kemur Grænlandi, þangað til loksins sjórinn verður kaldur frá sjávarmáli til botns vestanvert í Grænlandshafi. Svo virðist og sem þverskurðarflötur heita straumsins minnki eptir því sem norðar kemur, þó eigi verði sagt með vissu, hve fljótt hann fari minnkandi, því kaldi sjórinn,

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.