Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Side 23

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Side 23
87 til hann finnur fyrir sér strönd, er veitir honum mót- stöðu; fylgir hann siðan strönd þessari og heldur sér jafnan upp að henni, meðan hún endist. í höfum þeim, er bæði ganga í straumar frá suðri til norðurs, og frá norðri til suðurs, verða menn að leita hinna fyrri að austanverðu í höfunum, en hinna síðarnefndu vestantil í þeim; eður með öðrum orðum: hinir köldu straumar, er til suðurs streyma, fylgja austurströndum, hinir heitu straumar, er liggja til norðurs, vesturströndum þeirra landa, er að hafinu liggja. þó verður að gæta þess, að hér er að eins að ræða um aðalstraumana í hafinu. J>etta er hægt að sanna: í Davíssundi fer kaldur straumur fram með Labradors ströndum til suðurs, og aptur heitari straumur norður með vesturströnd Græn- lands. — Likt á sér stað í hafinu milli Spitsbergen og Grænlands, og, eins og áður er sagt, í Grænlandshafi. Fram með austurströnd íslands fer straumurinn helzt til suðurs og er sjórinn þar kaldur; fram með vestur- strönd Noregs, fer apur á móti heitur straumur til norðurs; þetta sama sést í Norðursjónum, að minnsta kosti á sumrin, því sjórinn er þar kaldari fram með austurströnd Skotlands og Englands, en fram með vesturströnd Jótlands. í Kattegat leitar seltuminni sunnanstraumurinn upp undir vesturströnd Svíarikis, en seltumeiri sjór fer suður með austurströnd Jótlands. Mótstaða sú, er strönd veitir straumi, bindur straum- inn við ströndina; en af þessu hlýtur að leiða, að þar sem ströndin endár eða alt i einu fær aðra stefnu, sleppir straumurinn stefnu þeirri, er hann hafði áður og beygir til hægri handar, samkvæmt tilhneiging þeirri, er hann hefir til þess sökum möndulsnúnings jarðarinnar. — pessa eru nóg dæmi: Hinn kaldi straumur, er fer suð- ur úr Davíssundi, hefir tilhneiging til að beygja til vesturs, og heldur sér því upp að ströndum Labradors og síðar New-Foundlands; en strendur þessar neyða

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.