Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Blaðsíða 30
94
lægu þjóðir standa eigi í sambandi eða hlutfalli við
náttúruhluti hinna heitu landa; vér höfum hvorki
pálmhnetur né appelsínur, og vér mundum jafnvel ekki
geta lifað á þess konar hlutum; vér notum suma þeirra
einungis sem krydd eða sælgæti, en fæda vor og að-
búnaður verður að vera samhljóða þeim löndum, er
vér byggjum. Á hinn bóginn geta innbúar heitu land-
anna eigi lifað á vorri fæðu, né við vorn aðbúnað. 011
þessi hlutföll eru svo margbrotin, að vér getum eigi
talið þau hér, né farið nákvæmar út i þau. Kynkvíslir
mannanna eru hver annari svo ólíkar, að þegar þær
blandast, þá breytist þegar gjörvalt eðli þeirra bæði
til sálar og líkama. Einn dropi af hvítra manna blóði
gjörir svertingjann skynugri og skynsamari; einn dropi
svertingjablóðs í hvítum manni verður honum vörn á
móti þeim sjúkdómum, sem heitu löndunum fylgja og
og eru banvænir öllum aðkomumönnum1.
þennan stórkostlega mismun kynkvíslanna finnum
vér þegar í upphafi sögunnar. Samkvæmt Lepsíusi
var Menes Egyptakonungur uppi 3893 árum fyrir Krist
og ríkti í Memfis; hin elzta kínverska stjórn var uppi
2637 árum fyrir Krist. Abraham var uppi 1500 árum
fyrir Krist, að því er Lepsíus telur, og frá þeim tím-
um er til egypzkt myndaverk í legstað Seti-Mene-Phta
konungs hins fyrsta. þetta myndaverk sýnir hinar
fjórar kynkvíslir mannanna, sem Egyptum voru kunnar,
en það eru rauðir, gulir, svartir og hvitir menn, allir ,
mismunandi að litarhætti, andlitsfalli og fatnaði. Ein-
mitt um þessa ferskipting mannkynsins hljóðar sagan
í þúsund og einni nótt um konunginn yfir hinum fjór-
um svörtu eyjum og ferns konar fiska, hvíta, rauða,
bláa og gula; hinar fjórar eyjar eru hinar fjórar heims-
álfur, Evrópa, Asía, Libýa og Etíópía (eða þá austur-
I) Klöden, I, 1189.