Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Side 40

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Side 40
104 Um fornleifar frá svo fjarrum öldum, sem náðu yfir margar þúsundir ára, gat eigi verið að tala; þau stein- vopn og steinverkfæri, sem menn þektu, voru frá miklu seinni tímum. — Samt notuðu sumir sér hinar skökku ímyndanir alþýðu um tröll og stórvaxnar fornaldarþjóðir, og sýndu steingjörvinga stórvaxinna skriðdýra, og sögðu það væri mannabein, og glöptu þannig marga og sviku út peninga; var þetta einkum í Ameríku. Vér getum hér eigi farið yfir öll þau tímabil, sem lífið hefir verið uppi á jörðunni, frá því að sjáv- arlögin tóku til að myndast, og er það kent í stein- gjörvingafræðinni (Palaeontologia). Vér eigum hér einungis við mennina. Eins og nærri má geta, þá er það einkum Norð- urálfan, sem rannsökuð hefir verið í þessu sem öðru; samt hafa og steind mannabein fundizt annarstaðar, bæði í Asíu og Ameríku. En vér megum eigi gleyma því, að deiling landanna og lagarins, og loptleg hlut- föll eða deiling hita og kulda — að alt þetta var áður mjög ólíkt því, sem nú er. Á hinum fyrri öldum hnatt- arins var hitinn allur jafnari og meiri en nú er hann; á þeim hnattsvæðum, þar sem nú eru köld lönd, voru þá alt önnur lönd og önnur höf, og þá þrifust þar dýr og jurtir, sem nú hvergi geta lifað nema í hitabeltinu. þ>etta sannast á þeim leifum jurta og dýra, sem finn- astíþessum löndum1. En eptir þessar aldir, sem nema millíónum ára, kom ísöldin2. þá huldist öll Norður- ‘) Sbr. Steinafræði og Jarðarfræði bls. 118. 2) Bischoft’ reiknaði millíón ára fyrir steinkolalögin eingöngu. Öld og aldir merkja hér alt annað en 100 ára tíma; jarðaraldirnar eru óákvarðaðar að árataii og merkja jafnt sem „timabil“, og er sérhvert slíkt tímabil margar þúsundir ára. Stjörnufræðingar og jarðfræðing- ar hafa reiknað svo, að fyrir 100,000 árum var jörð næst sólu á sum- ar, en fjærst á vetur; þá voru sumur miklu heitari, en vetur kaldari: fyrir 210,000 árum var þessi mismunur mestur: þá voru vetur eigi

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.