Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Page 48

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Page 48
112 þessir menn, sem að minnsta kosti hafa verið hálfviltir og í ýmsu svipaðir sumum villiþjóðum, sem nú eru uppi, t.a. m. Eskimóum, Pesjereum (á Eldlandinu) o. fl., grafið ýmsar myndir, eða gjört úr þeim skurðsmíði, svo sem knffasköpt, og það af svo miklum hagleik, að lista- menn vorra tíma hafa furðað sig á; hafa þessar forn- þjóðir þar með látið eptir sig liggja vitnisburð um ár- risna tilfinning á list og hagleik; annars minna þess- ar myndir oss á ýmsa skurðdráttu Eskimóanna, og má líkja þeim í mörgu við þjóðir hreindýratímans. Allar rannsóknir sýna, að þessar þjóðir hafa raun- ar fjölgað meir út um löndin en þær þjóðir, sem uppi voru á mammútöldinni; en þær áttu heima á sömu stöðum, í suður- og vesturhluta Evrópu, og líklega syðst í Rúss- landi. Eptir því sem þessir suður- og vestur-Evrópu- menn fjölguðu og þeim fór fram, þá breiddust þeir út norður eptir, og frá þeim munu frumbyggjar Norður- landa vera komnir, með því þeir mjökuðust áfram fram meðsjónum og ánum, og nálguðust Eystrasalts strendur, þar sem byggilegt var orðið; líf þeirra var að mestu bundið við dýraveiðar og fiskiveiðar, og allir hættir þeirra voru lagaðir þar eptir; en af því þessi lönd voru þá svo afskekt, þá gátu þeir lengi haldið við venjur sínar og verkfæri, þótt nýjar aðferðir og nýir hættir væru upp komnir sunnar í álfunni1. Einkennilegir fyrir þetta tímabil eru „sorphaugarn- ir;‘ (Kjökkenmöddinger), en það eru stórir haugar og hrúgur af ostrum, kúskeljum, hörpudiskum og öðrum ætilegum skelfiskategundum; þar á milli eru merg- sprett bein af ýmsum dýrum, spendýrum, fuglum og skjaldbökum, og fiskabein; en innan um þetta finnast steinfæri: axir, knífar, örvaroddar, hamrar; hjartarhorn finnast þar og, kambar, netasökkur, pottbrot úr leir ') Worsaae, sst. bls. 326—327.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.