Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Side 2

Eimreiðin - 01.01.1896, Side 2
2 um hin sjerstaklegu málefni íslands gefin. Það má því svo að orði kveða, að þessi tvenn lög myndi í sameiningu grundvallarlög íslands. Það liggur næst að skoða þau sem tvo kafla í einni stjórnarskrá, þar sem fyrri kaflinn ræðir um hin almennu málefni landsins og stöðu þess gagnvart alríkinu, en hinn um hin sjerstak- legu málefni eða skipun löggjafarvaldsins, framkvæmdarvaldsins og dómsvaldsins að því, er þau snertir. Hins vegar gilda grundvallarlög Dana ekki á Islandi. Af því að sumir þó álíta þetta vafamál og svo lítur út, sem stjórnin eða hið íslenzka ráðaneyti sje á þeirri skoðun, að grundvallarlögin gildi á íslandi, verð jeg að reyna að rökstyðja skoðun mína í því efni nokkru ýtarlegar. Samkvæmt gildandi lögum áður en grundvallarlögin komu út gátu engin dönsk lög náð gildi á íslandi, nema þau væru auglýst á ákveðinn hátt á íslenzku í landinu sjálfu (sbr. tilskip. 21. des. 1831 og hæstarjettardóm 9. des. 1842). Þessi regla hlaut að gilda alveg eins um grundvallarlögin eins og hver önnur lög, og þar sem grundvallarlögin nú aldrei hafa verið auglýst á íslandi, þá geta þau heldur ekki gilt þar. Það var að vísu upprunalega ætlazt svo til, að grundvallar- lögin skyldu líka ná til íslands og einmitt þess vegna vóru full- trúar af íslands hálfu á ríkisfundinum 1848. En með því að ís- land hafði ávallt áður verið sjerstakt löggjafarsvið, þannig að það var engan veginn sjálfsagt, að lög, sem vóru gefin fyrir Danmörku, skyldu einnig ná til íslands, heldur varð að ákveða það sjerstak- lega og leita um það ráða alþingis eða íslendinga, hvort svo skyldi vera, þá hlutu menn að beita sömu aðferðinni gagnvart grund- vallarlögunum, enda var ákveðinn skildagi settur fyrir því, að gildi þeirra næði til íslands, þegar áður en þau lög vóru gefin. I’að var nefnilega ákveðið með konungsbrjefi 23. sept. 1848, að þau grundvallarákvæði, sem kynnu að vera nauðsynleg vegna hinna sjerstöku staðhátta íslands til þess að skipa fyrir um stöðu þessa landshluta í ríkinu, skyldu ekki verða ákveðin að fullu og öllu, fyrri en íslendingar væru búnir að láta uppi álit sitt um það á sjerstöku þingi í landinu sjálfu, enda skyldi það, er nauðsynlegt væri í því efni, verða lagt fyrir næsta reglulegt alþingi. Samkvæmt þessu stakk grundvallarlaganefndin upp á því, að skilyrði það fyrir gildi laganna á íslandi, sem sett var í konungsbrjefinu, yrði bein- línis tekið fram í lögunum. Þegar til atkvæða kom, varð þó ekkert

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.