Eimreiðin - 01.01.1896, Blaðsíða 80
8o
Revúei- (I, io og II, i, Múnchen 1895), og hina þriðju í »Die Kritik« (11,57; Ber-
lín 1895) um lagning frjettaþráðar til Islands, og mælir hann þar sterklega með
því, að bæði Þjóðverjar og aðrar þjóðir styðji það mál. I ritgerð þessari er bein-
línis sagt, að alþingi hafi tjáð sig fúst til að kosta lagning frjettaþráðarins milli
íslands og Hjaltlands, og lítur út sem orðin um þetta sjeu hreint og beint þýdd
úr ályktun alþingis, því þau eru merkt tilvitnunarmerkjum. Er þetta mjög óheppi-
legt, en stafar sjálfsagt af því, að höf. hefur verið skýrt rangt frá ályktun alþingis.
Annars hafa greinar um þetta frjettaþráðarmál staðið í mörgum útlendum blöðum
og víðast hvar verið rangt frá því skýrt. -- Ekkert hefur enn hevrzt um það, hvað
Mr. Mitchell hefur orðið ágengt í þessu máli, eða hvort hann hefur nokkuð gert
því til framkvæmdar. Þó má geta þess, að hann hefur fyrir skömmu skrifað
ritstjóra Eimreiðarinnar, að þess mundi ekki langt að bíða, að hann kæmi hingað
til Khafnar, til þess að tala við íslenzka ráðaneytið og stjórn Dana um málið.
FERÐABRJEF FRÁ ÍSLANDI hefur Dr. Ehlers skrifað í »Berlingatíðindi«,
15 að tölu, og hefur sjerprent af þeim kornið út í bókarformi, og er það kver
128 bls. Efnið i brjefum þessum er aðallega lýsing á landslagi og stöðum þeim,
sem höf. hefur farið um, og lætur hann mjög af íslenzkri náttúrufegurð og hvetur
menn til að ferðast til íslands, enda segist hann fullkomlega sannfærður um, að
landið eigi mikla framtíð fyrir höndum sem ferðamannaland, því þar megi sjá
því nær allt það, er mest aðdráttarafl hafi fyrir ferðamenn, er vilji lypta sjer upp
á sumrin. í brjefum þessum er sáralítið minnzt á landsbúa og lifnaðarhætti
þeirra, og virðist sem höf. hafi nú gert sjer far urn að sneiða hjá öllu, er sært
gæti tilfinningar íslendinga. — Mannvirkjafræðingur A. P. Hanson (frá Berlín), sem
ferðaðist á íslandi í fyrra sumar, til þess að rannsaka og gera áætlun um kostnað
við talþráðarlagningu milli Reykjavíkur og Akureyrar, hefur og ritað greinar um
ferð sína í nokkur blöð í Ameríku, og er í þeinr einkum skýrt frá framförum
þeim, sem orðið hafi á Islandi 10 síðustu árin. Hann hefur og haldið fyrirlestra
(í des. f. á. og jan. þ. á.) um ísland í Berlín og sýnt þar hátt á annað hundrað
myndir frá íslandi i ljósvel, á líkan hátt og Dr. Cahnheim gerði hjer í Khöfn í
fyrra (sbr. EIMR. I, bls. 79).
ÍSLENZKUR ÞlNGMAÐUR ERLENDIS. Við þingkosningar þær, sem
fram fóru í Manitoba í síðastliðnum janúarmánuði, kepptu tveir Islendingar um
þingmannssæti, þeir Baldvin Baldvinsson og Sigtryggur Jónasson, og hlaut hinn
síðarnefndi kosningu. Er hann þannig hinn fyrsti Islendingur, sem komizt
hefur á þing í Kanada, og virðist það benda á, að menn beri rneira traust til
hans í Ameríku, en sumir landar hans heirna á Íslandi virtust gera, er hann var
að bera þar fram »stóra málið« svo kallaða árið 1894.
V. G.