Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Side 24

Eimreiðin - 01.01.1896, Side 24
24 að sjúga merginn úr hinum nýju stefnum og nýju skoðunum jafnóðum og þær ber að, til þess að vera tilbúnir að kasta þeirn frá sjer undir eins og tekur að bæra á einhverri enn þá nýrri. Hið andlega líf er stöðugt á hreyfingu, uppspretturnar eru ótæmandi, allt er þar sífeldum og opt snöggum breytingum undirorpið. Pað er eins og sjálfum lífsins straum á fleygiferð sinni bregði þar fyrir augun. Urn leið ber þess þó að geta, að misjafnt er það, hve lengi hver skoðun drottnar, allt eptir því, hversu mikinn sannleik hún felur í sjer og hve vel hún á við lund þjóðar þeirrar, er um er að ræða. fegar um andlegar hreyfingar í Kaupmannahöfn er að ræða, þykir mjer skylt að geta lítið eitt þess manns, er framar öllurn öðrum núlif- andi manna hefur haft áhrif á andlegt líf í Danmörku. Hann er að vísu eigi bundinn við háskólann, þessar aðalstöðvar andlegs lífs í Dan- mörku, og hefur jafnvel í vissum skilningi átt i stríði við hann; en þó var það þar, er hann fyrst birti mönnum skoðanir sínar, og kjarninn af tilheyrendum hans og lærisveinum eru einmitt þeir hinir ungu nemendur, er á háskólann ganga. fessi maður er Georg Brandes. Pað er hans andi, sem í siðastliðna tvo áratugi hefur svifið yfir öllu, eða þvi nær öllu, er fram hefur komið í Danmörku i skáldskap og fögrum listum. fað var i kring um 1870 að hann, eptir að hafa kannað ókunna stigu, kom aptur til Danmerkur og flutti með sjer spánnýjar skoðanir um skáldskap og listir og lifið í heild sinni, og hann var hvergi hræddur að birta þær fyrir mönnum. Hann tók að halda fyrirlestra á háskól- anum og flykktust menn saman svo hundruðum skipti að hlýða á þá, þvi slíkum skoðunum höfðu menn eigi átt fyrr að venjast. Hann boðaði uppreist á móti deyfð þeirri, er drottnað hafði í bókmenntum Dana um langan aldur, og um leið krossferð móti öllum þeim fornu kreddum og vanalöstum, er fastgróin voru við fjelagslifið. Menn hrakku eins og upp úr fasta svefni við þessa rödd hrópandans, og flestir lögðust að honum og kváðu skoðanir hans gagnstæðar bæði guðs og manna lögum. Innan skamms safnaðist honum þó harðsnúinn flokkur meðal æskulýðsins, og með sifeldri baráttu gegn megnri mótspyrnu i rúm 20 ár hefur honum og flokki hans tekizt að hrinda mörgum kreddum. Mjer fyrir mitt leyti finnst nú hinn nýji boðskapur hans eigi vera einber fagnaðar- boðskapur, nje kröfur hans og kenningar byggðar á eintómum og óyggj- andi sannindum, en enginn vafi finnst mjer á þvi, að hann hafi hleypt nýju fjöri i bókmenntir Dana og leitt þær að ýmsu leyti á rjettari veg, en áður vóru þær á, þótt hinsvegar ýmsir af lærisveinum hans og fylgi- fiskurn hafi komizt á villigötur, svo helzt litur út fyrir að þeir komizt aldrei á rjettan veg. Nú á hinum síðustu árum hafa enn aðrar og nýrri skoðanir tekið að gjöra vart við sig og ryðja sjer til rúms i bókmenntum Dana, en hjer er eigi tækifæri til að fara frekar út i þá sálma. Peir, sem ókunnir eru stórbæjum og hafa alið allan aldur sinn til sveita, eða lifað á einhverjum útskika heimsins, eins og t. a. m. íslandi, geta tæplega gert sjer grein fyrir, hvílikan sæg af andlegum uppbygg- ingar- og menningarmeðölum Kaupmannahöfn gefur ibúum sínum kost á að nota. Þar getur hver er vill, af hverri stjett sem er, gegn vægu eða engu gjaldi satt fróðleiksfýsn sína. Margskyns söfn og menningar- stofnanir standa bæjarbúum opin, og er margt og mikið á þeim að græða

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.