Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Qupperneq 29

Eimreiðin - 01.01.1896, Qupperneq 29
29 meiðslum. í hvert skipti er ný auglýsing birtist á gluggarúðunni, kveður við endalaust óp bæði frá fylgifiskum og mótstöðumönnum þess, er kjörinn er. Hinir fyrnefndu hefja upp fagnaðaróp, en hinir síðarnefndu haturs- og gremjuóp og spara hvorugir röddina. Götustrák- arnir eiga eigi hvað minnstan þátt i ópinu og háreystinni, og er kjör- dagurinn þeim hinn mesti tyllidagur á árinu, miklu, miklu tilkomumeiri og skemmtilegri en jólin og páskarnir. Þeir hlakka til hans löngu áður, eins og krakkarnir á Fróni hlakka til rjettanna. Og þeir þykjast svo sem ekki láta svona af gáska eða unggæðisskap; nei, engum mundi haldast uppi að bera hinum unga, upprennandi þorparalýð Kaupmanna- hafnar slíkt á brýn. Þeir þykjast taka þátt í kosningunum með jafn- mikilli alvörugefni og hinir fullorðnu. Þeir skipa sjer í flokka eins og aðrir, og hver flokkur þykist albúinn að verja skoðun sina með hnúurn og hnefum, og eru þar endur og sinnum háðir blóðugir bardagar milli þeirra. Sú var tíðin að þeir gengu í breiðfylkingu um götur og stræti bæjarins og sungu hástöfum: »Ned med Estrup, Scavenius og Ravn« etc. Allt og allir eru á fleygiferð, og sá þykir hvorki í húsum hæfur nje kirkjugræfur, er eigi vill taka þátt i ósköpunum. Regar kvölda tekur og á daginn liður og útgert er um úrslitin í flestum kjördæmunum, kyrrist smátt og smátt á strætunum. Allir þeir, er vetlingi geta valdið og eyri eða eyrisvirði eiga, setjast að drykkju, •— annaðhvort til að súpa gleðibikar eða þá til að drekkja sorginni og gremjunni. Vinið er, eins og flestum mun kunnugt, margra handa járn og kemur sjer vel undir ýmsum kringumstæðum. Háreystina á drykkju- stofunum keyrir fram úr öllu hófi, og optast fer svo á endanum, að menn eigi láta sjer nægja drykkjuna eina og sönginn og hrópið og ræðuhöldin, heldur færast þeir i ásmegin og slær víða í áflog og rysk- ingar. Lendir stundum saman fjölda manns í eina áflogabendu, og borð og stólar, flöskur og glös eru hroðin, eins og stæði hjer hin skæðasta fólkorrusta. Fá menn þar stundum mörg sár og stór, og læknarnir á sjúkrahúsunum mega vera viðbúnir fram eptir allri nóttu að rimpa saman skurðina og sletta plástrum á skeinurnar. Gengur á þessum ósköpum þar til lögreglan skerst í leikinn og dregur verstu óróa- og áflogaseggina í dýflissu. Eru stundum svo mikil brögð að þessu, að fangaklefarnir á lögreglustöðvunum eru alskipaðir, er á nóttina liður. En óróaseggirnir hafa það sjer til afsökunar og rjettlætingar fyrir lögrjettunni á dómsins degi, að það var kjördagur, og hann er að jafnaði ekki nema einu sinni þriðja hvert ár. Pað getur lítill vafi leikið á því, hverjar pólitískar skoðanir mundu verða ofan á i Kaupmannahöfn, ef allir ættu kost á að kjósa eptir eigin geðþótta. Það yrðu auðvitað hinar frjálslyndari skoðanir, jafnvel hinar stækustu, því þeim munu flestir minni háttar menn — iðnaðarmenn og verkamenn — vera hlynntir í hjarta sinu, en þeir tveir flokkar eru lang- fjölmennastir. Ástæðan til þess, að þeir eigi mega allir brej7ta eins og andinn blæs þeim i brjóst, er sú, að drottnar þeirra og vinnuveitendur eiga allskostar við þá og hafa ráð þeirra í hendi sjer. Er það varla efamál, að sumir þeirra beita því valdi sinu til að kúga verkamenn til að fylgja sjer að málum. En það skal sterka sannfæringu og óbilugt þrek til að risa móti kúguninni, þegar sigurlaunin eru sultur og seyra. Enn er sá einn dagur á árinu, er keimlikur er kjördeginum, en
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.