Eimreiðin - 01.01.1896, Qupperneq 74
74
þessa dagana verið sjálfur að fást við tilraunir með Röntgens-geisla á fjöllista-
skólanum hjer í Khöfn. En síðan greinin var skrifuð hefur ýmislegt birzt
um tilraunir með þessa geisla í öðrum löndum, því um allan hinn menntaða
heim eru menn nú sem óðast að fást við slíkar tilraunir, og flytja blöðin ná-
lega daglega nýjar og nýjar fregnir um árangurinn af þeim. Er prófessor
Röntgen þegar orðinn heimsffægur fyrir uppgötvan sína, enda telja rnenn
hana meðal hinna þýðingarmestu á þessari öld. Pykir því hlýða að birta
hjer bæði mynd af honum sjálfum og skýra lítið eitt frá því, sem blöðin hafa
þegar flutt um árangurinn af tilraunum með hina ósýnilegu geisla hans.
Hjer í Khöfn hafa tilraunirnar meðal annars sýnt, að taka má mynd af
hlutum úr málmi, sem liggja i luktum trjestokk eða ,undir 600 bls. þykkri bók,
því geislarnir fara bæði í gegnurn trjeð og bókina. I öðrum löndum hafa til-
raunirnar einkum stefnt að því, að nota uppgötvun þessa í þarfir læknisfræð-
innar. ÁÞýzkalandi hafa menn þannig tekið mynd af mannshönd, sem stungið
var inn í trjestokk, og þykir oss vel til fallið að birta hjer eina slíka mynd. Má
af henni sjá, að geislarnir hafa farið bæði i gegnum stokkinn og vöðva hand-
arinnar, því holdið sjest að eins eins og í þoku; aptur á móti sjest beinagrind
handarinnar greinilega, en þó ekki nærri eins vel og gullhringurinn á græði-
fingrinum. Sýnir þetta, að geislunum hefur veitt erfiðara að komast gegn um
gullið en í gegn urn beinin. I Vínarborg hafa frægir læknar rannsakað beinbrot,
vanskapaðan fót á stúlku og fundið kúlur í holdi manna og steinmyndanir í
blöðrum með Röntgens-geislum,, og hafa því getað hagað holdskurðtmr sínum
og lækningaraðferð eptir því. I Berlín eru herlæknar nú og í óða önn að gera
tilraunir með _ að finna kúlubrot og þess háttar í holdi manna á þennan hátt og
tekst vel.— I Lundúnum kom nýlega sjómaður einn á sjúkrahús, og þjáðist
hann af ákaflegum kvölum í bakinu, en læknunum var ekki ljóst, af hverju það
gæti stafað. Var þá gripið til Röntgens-geisla og tekin mynd af baki mannsins.
Kom það þá í ljós, að hnífsblað sat á einum stað í bakinu á milli tveggja
hryggjarliða, og hafði það setið þar í rnörg ár. Var maðurinn nú holdskorinn
og blaðinu kippt burt, og fjekk hann þá apfcir heilsu sína. Margt fleira mætti
segja um þýðingu þessarar uppgötvunar, ef rúmið leyfði, og þvkir þó einsætt,
að fæstum sje enn ljóst, hve margt gott megi afhenní leiða, er "mönnum lærist
betur að nota þessa nýju og ósýnilegu furðugeisla. [Aths. vib próförk: Nú kvað
mönnum (prófessor Salvioni í Pérugia á Ítalíu o. fl.) hafa tekizt, að gera geislana
sýnilega, svo að sjá megi hluti í luktum ílátum, gegn um trje o. s. frv. — Menn
fara bráðum að geta sjeð »í gegn um holt og hæðir og helli sinn«.]
RITSTJ.
Skák lífsins.
(Eptir prófessor Thomas Huxley *.)
Setjum nú svo, að það væri víst, að líf og farsæld okkar allra,
hvers um sig, væri komin undir þvi, að við gætum unnið í skák-
tafli. Ætli við færum þá ekki að bera okkur að læra að tefla skák?
Ætli nokkur væri í rónni, fyrri en hann að minnsta kosti þekkti
skákmennina og kynni nokkurnveginn mannganginn? Ætli við
mundum ekki hafa stækustu andstyggð á þeim föður, sem ljeti
son sinn alast upp, eða þvi ríki, sem ljeti þegna sína alast upp, án
þess að læra að þekkja »kónginn« frá »peðinu«?
1 Nafntogaður enskur spekingur og náttúrufræðingur, sem er nýlega dáinn.