Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Síða 35

Eimreiðin - 01.09.1898, Síða 35
195 Lesið »Lars Kruse«; þá munuð þig naumast segja, að engar hetjur sjeu til nú á dögum og engin skáld til að mæra þær. Ann- ars var Lars Kruse ekki nema rjettur og sljettur sjósóknarmaður norður á Skaga. Jeg vil nú leyfa mjer að telja nokkur af þeim ritum, er getið hafa Drachmann mestan frama hjer í landi. Þá er fyrst að nefna kvæðasafnið »/ hálfum hljóðum« (»Dæmpede Melodier«), eintómir kostgripir bæði að efni og búning. Að því er efnið snertir, skipt- ist á brennandi heipt og blíðasta tilfinning fyrir því fagra í náttúr- unni, angurvær hæðni og góðlátleg glaðværð, og allt er það eins og nýrisið úr söltu sjóbaði, sveipað hreysti og heilnæmi. Og þá er búningurinn, þessi aðdáanlegi búningur, sem Drachmann velur ljóðum sínum. Hann er ljettur og liðugur, en þó jafnframt áhrifa- rnikill og stórfelldur; bragliðirnir leika opt lausum fæti, en mis- fellur eru engar í hljóminum; hann er sem brunandi árniður eða þjótandi stormur, sem gjálfrandi bylgja eða raulandi þýðum rómi, allt eptir því sem efnið krefur; það er eins og skáldið mæli það allt af munni fram, og þess vegna er enginn þreytandi þjalar- bragur á því; stundum slæðast ýmsar hugsanir með, sem ósköp vel mættu missa sig, en einmitt vegna þess, að straumurinn þannig hrífur þær með sjer, fáum vjer svo smellna mynd af hugarlífi voru með öllum þess loptköstum og útúrdúrum. Heyrið þið ekki bárugjálpið í vísunni þeirri arna. (Skáldið mælti hana af munni fram á sjóferð): >Snart er de lyse Nætters Tid forbi, Og Mörket stiger bag de dvbe Vande, Og Bölgen spiller op den Melodi, Som nu kun nynnes svagt ved Sundets Strande.«1 Eða er það ekki sem maður taki sjálfur öflugt áratog gegn hnarreistum brotsjó og skoppi svo ljettlega yfir öldufaldinn, er hann les annað eins erindi og þetta: Alle Mand i Báden op! Og præcis plToften sat Griber hver den lange Are Haler ud med sejge hárde 1 Þ. e. Bráðum er bjartnættið horfið og myrkrið stígur upp á bak við djúpið, og báran tekur að leika það lag, sem nú er kveðið að eins veikum rómi við strendur Eyrarsunds. D

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.