Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Side 27

Eimreiðin - 01.09.1900, Side 27
.8; nema loftkastali einn. Söfnin eru 5 að nafninu til, sitt á hverjum stað ; þrjú þeirra eiga sér vísan samastað, en tvö eru á ringulreið, landsmönnum til minkunar. Pau eru 1. Landsbókasafnið; 2. Forn- gripasafnið; 3. Málverkasafnið; 4. Náttúrusafnið; 5. Landskjalasafnið. Landsbókasafnið er mest metið og mestu til þess kostað, af því fáir sem engir nota bækurnar, svo ekki er hætt við að þær slitni eða skemmist; má því geyma þær öldum saman alþaktar ryki, svo mann hryllir við að snerta þær, að minsta kosti margar hverjar, sem liggja í bunkum og hrúgum, og er engin sápa svo sterk, að hún fái nuggað af manni þann óþverra, sem kemur á mann af að handleika þær, enda er ekkert vatn og engin þurka eða handklæði til á safninu. Annars er 'þar mikið af bókum og mörg dýr verk, sem geyma vizkuna ónotaða miklu betur en Fofnir, meðan hann lá á gullinu á Gnítaheiði. Á lestrarsalnum sitja sjaldan aðrir en einn eða tveir menn, sem rita upp úr íslenzkum handrit- um, og svo fáeinar hræður með einhverja skemtibók. Pegar alþingið lét landið kaupa bókasafn Jóns Sigurðssonar, þá var því dreift á víð og dreif innan um hinar bækurnar, í stað þess að láta það vera í skápum sér, til minningar um hinn fyrveranda fræga eig- anda, eins og siður er annarsstaðar, t. a. m. í British Museum: þar eru bókasöfn Hookers, Joseph Banks og fleiri manna, og hafa Englar verið svo hugulsamir að láta þau vera sér. Vísindalegar bækur safnsins eru því nær alls ekki notaðar, sem ekki er við að búast. Landsbókasafnið er opið hvern virkan dag, 3 stundir, og þjóna því 2 bókaverðir. Forngriþasaf nií> er nokkurnveginn sótt, en alt fyrirkomulagið er afleitt, og ómögulegt að átta sig á neinu þar, sökum rúmleysis; engin prentuð leiðbeining og engin niðurröðun á gripunum.1 l'etta safn er opið tvisvar sinnum á viku. Mdiverkasaf m'ð, er í rauninni ekki safn nema að nafninu til, því það er út um alt í alþingishúsinu; málverkin eru eftir ýmsa meistara, alla danska, og hafa verið gefin hingað fyrir forgöngu Bjarnar sýslumanns Bjarnarsonar (nú í Dalasýslu); þau eru ágæt- lega vel gerð, en hafa enga sögulega þýðingu, með því engin málverk eru til frá ýmsum tímum listarinnar. Öll þessi söfn eru í alþingishúsinu, sem er haft fyrir ruslakistu alls konar óskyldra hluta, er hingað hafa safnast. 1 Úr þessu verður nií sjálfsagt bætt, er safnið hefir fengið betra húsnæði í nýja bankahúsinu. RITSTJ.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.