Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Síða 68

Eimreiðin - 01.09.1900, Síða 68
228 nægilegu fjármagni til að fullnægja öllum sanngjörnum kröfum landsmanna. Að vísu sá þingið sér ekki fært að ráða því máli til lykta að sinni, af því frumvarp það, er fyrir því lá, var svo lítt undirbúið, en það tók það til rækilegrar meðferðar og skoraði á stjórnina að rannsaka málið og undirbúa undir næsta alþingi, og að leggja það þá fyrir þingið, ef það reyndist vel fallið til þess að verða gert að lögum. í*að er því enginn vafi á, að frumvarpið rís upp aftur í einhverri mynd, hvort sem fyrirkomulag bankans kann að verða alveg það sama, eins og farið var fram á á síðasta þingi, eða nokkuð með öðru móti. Allir skynsamir menn verða líka að játa, að slík bankastofnun er afarnauðsynleg og mundi geta haft ómetanlega þýðingu fyrir atvinnumál landsins. Án slíkrar stofnunar er ekki hugsanlegt að verzlunin geti orðið innlend, né vöruskifta- og skuldaverzlunin afnumin. Án hennar eru heldur engin líkindi til að neinum stærri iðnaðarfyrirtækjum verði komið á fót og vatnsafl landsins notað, sem vera ber. Og verulegar umbætur á landbúnaði og fiskiveiðum landsmanna geta heldur varla átt sér stað, meðan engin slík öflug peningastofnun er til í landinu. Skyldi ekki t. d. annað hafa orðið ofan á með kaup- félögin og verzlun þeirra orðið í dálítið réttara horfi, ef þau hefðu getað notið aðstoðar öflugs banka meðan þau vóru að koma fót- um undir sig? Á því er enginn vafi; því skynsamlega var til þeirra stofnað, þó að bankaleysið hafi gert að verkum, að þau hafa ekki náð tilgangi sínum og komist í öfugt horf. En þó að allir verði að játa, að mikil nausyn sé á, að öflug bankastofnun komist upp í landinu, hafa þó komið fram heldur en ekki háróma raddir gegn hinni fyrirhuguðu bankastofnun, af þ\ í að ætlast væri til að mikill hluti af stofnfé hans yrði útlent fé, svo gróði bankans lenti að miklu leyti í höndum útlendinga. Petta sýnir, hve kínverskuandinn er ríkur hjá sumum mönnum á íslandi, barnaskapurinn og öfundsýkin. Altaf er verið að kvarta um pen- ingaskortinn í landinu. og að þar vanti fé til allra framkvæmda, svo ekkert sé hægt að vinna, — okkur vanti íé, fé. En svo þegar útlendingar koma og bjóða fram féð, þá á að vera ófært að þiggja það, af því að það komi frá útlöndum. En hvaðan ætlast menn þá til að féð eigi að koma, ef það má ekki koma þaðan, úr því það er ekki til í landinu sjálfu? Ætlast menn kannske til að gull- inu rigni niður úr skýjunum, ef menn að eins æpa nógu hátt um að ekkert sé hægt að gera fyrir peningaleysi ? Nei, féð verður að

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.