Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Qupperneq 74

Eimreiðin - 01.09.1900, Qupperneq 74
234 ÍVí verður sem sé naumast neitað, að ýmsir af þeim þurfalingum, sem nú lifa allþægilegu lífi sem sveitarómagar, mundu geta unnið fyrir sér, ef meira væri að þeim lagt, enda hefir sú orðið reyndin á, þegar sveitarómagar hafa verið sendir til Ameríku, að þeir hafa þar vel getað alið önn fyrir sér, þó þeir þættust ekki geta það á íslandi. En þegar menn geta viðstöðulaust fengið eins gott eða jafnvel betra viðurlífi á kostnað annara, en þeir, sem eru að berjast við að bjargast af handafla sínum, þá finst þeim óþarfi að vera að leggja mikið að sér. En að vera að ala slíka peyja á alþjóðar kostnað, er sannast að segja fullkominn misskilningur á mannúðar- reglunni og harla mikil rangsleitni gagnvart öllum hinum nytsam- ari mönnum í þjóðfélaginu. Bindindismálið eða baráttan gegn ofdrykkju hefir nú hin síðari árin fengið mikið fylgi á íslandi, enda hefir að því verið unnið af töluverðu kappi. Bindindisfélögin eru nú orðin mörg og er Goodtemplarafélagið þeirra stærst og duglegast. í því eru nú um 4000 manns og það hefir komið sér upp mörgum samkomu- húsum. Hið stærsta þeirra er í Rvík, enda er aðalaðsetur félags- ins þar og stórstúka þess. Par er og annaðhvort ár haldið stór- stúkuþing, er undirstúkurnar geta sent 1 fulltrúa á fyrir hverja 50 félagsmenn. Að hin öfluga barátta bindindisfélaganna hafi borið töluverðan árangur, má meðal annars sjá af því, að þó að inn- flutningur á öllum öðrum vörum hafi aukist stórkostlega hinn síð- ari hluta aldarinnar, þá hefir innflutningur á vínföngum beinlínis minkað, þegar miðað er við hvern íbúa landsins. Árið 1865 var þannig innflutt af brennivíni 8,94 pottar á mann og af öðrum áfeng- um drykkjum (vínum) 1,81 pt.; en 1896 var ekki innflutt af brenni- víni á mann nema 5,05 pt., af öðrum áfengum drykkjum (vínum) 0,92 pt. og af öli 2,46 pt. Af þessu má sjá, að þó að ölið sé metið jafngildi brennivíns (sem þó fer mjög fjarri), þá hefir samt verið innflutt 21 /3 potti minna af áfengi á mann 1896 heldur en 1865. Og þegar þess er nú enn fremur gætt, að hér er miðað við hvert mannsbarn á landinu, en tala þeirra, sem áfengisins neyta, er svo margfalt minni, þá er þetta engin smávegis framför í rénun ofdrykkjunnar. Alþingi hefir líka stutt bindindishreyfing- una, bæði með því, að veita Goodtemplarafélaginu talsverðan styrk, og með því að gera alla áfengissölu miklum mun örðugri en áður og leggja þungan skatt á hana. Pað má því búast við, að fram- farirnar verði enn meiri í þessu efni í nánustu framtíð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.