Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Page 1

Eimreiðin - 01.09.1906, Page 1
Um þrifnað og óþrifnað. Pað hefur lengi verið talið ótvírætt merki um hátt menningar- stig hjá þjóðunum, ef þær eyða miklu af sápu. Með öðrum orðum, menn eru vanir að skoða þrifnað eitt af aðaleinkennum menning- arinnar. Pegar vér lítum yfir löndin, sjáum vér að villiþjóðir, svertingjar, skrælingjar, Kínverjar o. s. frv. lifa alment í mesta sóðaskap, en því lengra sem þjóðirnar eru komnar á braut fram- faranna, því þrifnari og hreinlátari eru þær. Englendingar, Ame- ríkumenn og Japanar standa öðrum framar í því sem svo mörgu öðru. Lítum vér aftur í tímann, sjáum vér einnig, að þrifnaður einkennir þær þjóðir, sem langt eru komnar á hinum ýmsu tíma- tímabilum sögunnar. Pegar veldi Grikkja og Rómverja stóð með hæstum blóma, var þrifnaður hjá þeim á mjög háu stigi, þar sem hins vegar Gallar, Germanar, Skýþar o. fl. voru sannkallaðir sóðar og lúsablesar. — Vér íslendingar þurfum eigi annað en að lesa hinar fornu bókmentir gullaldar vorrar til að sjá hversu forfeður vorir möttu þrifnaðinn mikils. Kembdr ok þveginn og Pveginn ok mettr skyli kænna hverr ríði þingi at stendur meðal heilræðanna í Hávamálum. — Á söguöld vorri var það altíit að gestir, sem að garði komu, tóku fótlaugar, en á undan og eftir máltíðum var alsiða að taka mund- eða handlaugar, og að lauga allan líkamann við og við þótti sjálfsögð skylda sið- aðra manna. Hverar og laugar voru mikið notaðar til þvotta, og ber Snorralaug í Reykholti enn þá vott um, hve Snorra Sturlu- syni var ant um persónulegt hreinlæti sitt og sinna manna. Pá var baðstofa á hverjum bæ, sem bar nafn með rentu, því þar tók alt heimilisfólkið laugar eða gufubað og baðaði allan kroppinn lík i

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.