Eimreiðin - 01.09.1906, Blaðsíða 15
i75
meiri verði þinn en þeira (o: annarra landa)
þrifnaðr allr, unz himinn riinar.
I'rifnaður er heilsubót, þrifnaður ber vott um hátt menn-
ingarstig.
Kaupmannahöfn i. nóv. 1904.
Steingrímur Matthíasson.
Tvær systur.
íslenzk sveitarsaga.
Ég þekti þessar tvær systur, þegar ég var unglingur. P;i
voru þær báðar hnignar að aldri, orðnar kerlingar.
þær voru af almúgafólki, jafnvel lægsta stigi. Nú eru þær
báðar komnar undir græna torfu fyrir nokkrum árum og líklega
muna menn nú ekki nema óljóst eftir þeim — fyr en ég minni
á þær.
þær hétu Sigurlaug og Geirlaug.
þær voru alsystur, en ekki vitund líkar.
Að lýsa þeim — jú, það má líklega til, þó ég helzt vildi
komast hjá því, af ástæðum, sem mönnum munu betur skiljast
síðar.
því þær voru alt annað en ásjálegar, þegar ég þekti þær.
Önnur þeirra, Sigurlaug, var vinnukona á næsta bæ við mig
og hafði verið þar í mörg ár.
Allir vissu það, að hún var þar vinnukona og jafnvel hitt líka
að hún var oftast nær eina vinnukonan, að minsta kosti eina
vinnukonan, sem toldi þar árlangt eða meira. því hann var ekki
hjúasæll, bærinn sá.
Menn vissu það líka, að hún vann að minsta kosti á við tvær
vinnukonur, vann jafnvel karlmannsverk, vann seint og snemma,
sýknt og heilagt og lét þarfir heimilisins sitja í fyrirrúmi fyrir
sínum eigin þörfum.
það hefðu margir þegið að fá slíka vinnukonu. En Sigurlaug
gamla hirti ekki um að hafa vistaskifti.