Eimreiðin - 01.09.1906, Blaðsíða 61
221
Að því leyti sem alþingi þannig tókst á þessum fundi að
koma fram sem einn maður með kröfur sínar gegn Dönum, mega
íslendingar vera stoltir af framkomu fulltrúa sinna. Pví eftir því
sem út leit áður en að heiman var haldið, virtist ekki mikil von
um, að svo vel mundi takast. En minnihlutinn sýndi hér þá af-
neitun, að takmarka sig við ákveðin meginatriði og stjórnarliðið
sýndi þá afneitun að yfirgefa fyrri afstöðu sína og fylgja minni-
hlutanum að málum í öllum kröfum hans. Eiga hvorirtveggju
miklar þakkir skildar fyrir framkomu sína, og er óþarfi að rekja,
hvað stjórnarliðinu hafi til gengið að snúa svo skjótlega við blað-
inu. Hvað annað en skyldurækni við þjóð sína og nývöknuð til-
finning fyrir sannleiksgildi því, er kröfur og stefna minnihlutans
hefði við að styðjast ?
Einmitt þetta, að alþingi fylkti sér einróma um hinar fram-
settu kröfur, hafði mikil áhrif á Dani og kom það þegar ljóslega
fram í svörum þeirra á fundinum. Sama hefir og skýrt komið
fram í blöðum Dana eftir að þingmenn voru farnir. far hefir hver
greinin rekið aðra um kröfur íslendinga, og ber allar að einum
brunni, að sjálfsagt sé að uppfylla þær. Pær séu ekki nema
sanngjarnar. Reyndar hafa hin eiginlegu stjórnarblöð fremur lítið
látið til sín heyra, svo að oss sé kunnugt, en svo má heita, að
blöð allra annarra flokka hafi nú þegar tjáð sig hlynt kröfunum,
og er þá meirihluti hinnar dönsku þjóðar og fulltrúa hennar á
bandi íslendinga. Sigurinn er því vís, ef íslendingar nú kunna að
smíða meðan járnið er heitt, og geta — eins og á ríkisþingshúss-
fundinum — látið innbyrðis flokkadeilur lúta í lægra haldi fyrir
heill landsins og sjálfstæði.
Með því vér þykjumst þess vissir, að lesendur Eimr. fýsi að
sjá afstöðu danskra blaða til málsins, skulum vér nú tilfæra um-
mæli nokkurra hinna helztu meðal þeirra.
»POLITIKEN« (aðalblað hinna óháðu vinstrimanna) flytur
31. júlí alllanga grein um heimsókn þingmanna og hljóðar niður-
lag hennar svo:
»Alt virtist benda á, að pólitisk menning sé á háu stigi hjá ís-
lendingum. Þeir vita hvað þeir vilja, bæði að því, er kemur til stjóm-
málanna og til fjármála þeirra og atvinnumála. Stjórnmálakröfur sínar
hafa þeir sett fram skýrt og skorinort, sem vér síðar skulum minnast á;
og þeir hafa krafizt, að þær yrðu rannsakaðar og metnar af milliþinga-
nefnd, er skipuð sé fulttrúum allra flokka bæði á alþingi og á ríkisþinginu.