Eimreiðin - 01.09.1906, Blaðsíða 45
205
og svo lögðum við aftur af stað fram með hinum undurfögru
Eyjafjöllum til prestssetursins Holts undir Eyjafjöllum, sem við
komumst að fremur seint um kvöldið.
Næsta dag riðum við lengra austur og komum um hádegis-
bilið að Skógafossi (sjá mynd 2), sem kemur niður suðurhlíð
Eyjafjallanna í fremur breiðum straumi frá hérumbil 240 feta hæð.
Það er merkilegt við þennan foss, að vatnsstraumurinn fellur ekki
niður í einu flóði, heldur í 12—15 einstökum vatnssúlum, sem
sameinast aftur lengra niðri, svo að alt vatnsmegnið steypist
þrumandi í djúpið með slíku heljarafli, að þykkur vatnsgufumúr
slöngvast upp frá katlinum undir fossinum nálega 100 feta í loft
upp. Ég stóð í vatnsstígvélum mínum í miðri ánni rétt fyrir framan
fossinn, þegar ég tók myndina af honum, og niðurinn í fossfallinu
var þar svo ákaflegur, að það var alls ómögulegt fyrir mig að
skilja eitt einasta orð af því, sem Bjarni minn hrópaði til mín.
Eftir hálfrar klukkustundar reið enn lengra austur komum við
svo að Kvernufossi (sjá mynd 3), sem fellur einnig niður suð-
urhlíð Eyjafjallajökulsins og liggur djúpt inni í enda fagurs og
indæls gils. Reyndar er hann eigi eins hár og stór og hinir
tveir fyrnefndu fossar; en það er þó merkilegt og skemtilegt við
hann, að maður getur klifrað fram með hömrunum rétt inn undir
fossinn, svo að maður getur séð flóðið koma niður næstum á
höfuð sér.