Eimreiðin - 01.09.1906, Blaðsíða 42
202
jarðaður við hljóm af sínum eigin sönglögum — í söngmentarsögu
sinnar þjóðar, sérstaklega að því er snertir þjóðlega útbreiðslu söng-
listarinnar, er nafn hans ógleymanlegt. Stgr. Th.
Við aðalfossana á sunnanverðu Islandi.
Eftir M. phil. CARL KÚCHLER.
Pað var merkistíð fyrir mig, og í raun og veru gleðitíð, sum-
arið 1905 ! Því þá rættist eftir margra ára löngun loksins ein hinna
heitustu óska lífs míns: — ég sá Island! Landið með hinum
ljómandi snæfjöllum í hánorðri, sem mig hafði þegar dreymt um,
er ég var skólapiltur, og sem ég hef helgað starf og lífsafl mitt
alt frá þeim tíma, er ég var námsmaður, og til þessa dags!
Hinn 19. júní kom ég til Reykjavíkur, og frá 23. júní til 11.
júlí ferðaðist ég með mínum gamla vini Bjarna Jónssyni frá Vogi
sem fylgdarmanni um suðvestur-fjórðunginn, til þess að skoða
landið þar í þeim tilgangi, að semja ferðamannabók til leiðbein-
ingar þeim útlendingum, sem vilja sjá alla fegurð landsins í því
bygðarlagi.1
Fórum við Bjarni þá yfir Ölfusið tij hinna mikilfenglegu
Eyjafjalla og dáðumst sérstaklega að þeim mörg hundruð smá-
fossum, sem falla þar beint gegnum móbergið og renna niður
klettana eins og glitrandi silfurbönd. Paðan héldum við áfram
inn í f’órsmörk, til þess að skoða hina dæmalausu bergkast-
ala hennar; fórum svo yfir Markarfljót fram með Fljótshlíð-
inni til Hlíðarenda og þaðan beina leið yfir Príhyrningshálsana
til Heklu, sem við gengum upp á í beljandi norðaustan-
stormi og herpingskulda. Svo fórum við um Gullfoss til Geysis
og f’ingvalla. Bar hittum við vin minn Indriða Einarsson frá
Reykjavík, og með honum fórum við nú á næturþeli Kaldadals-
veginn til Kalmanstungu og Surtshellis, og svo fram með Hvítár-
síðu og yfir Pverá til Hvamms undir Baulu. Paðan héldu Bjarni
1 Ferðamannabók þessi, er heitir blátt áfram »ísland&, er nú komin út, fyrst
um sinn aðeins á þýzku, á kostnað hinnar heimsfrægu ferðamannabókaverzlunar
Karl Baedeker í Leipzig 1906 (verð: 7,50 mörk). Mun hún einnig koma út á ensku
og frönsku frá sama forlaginu á allranæstu ýunum.