Eimreiðin - 01.09.1906, Blaðsíða 73
233
FANNEY. Tímarit til fróðleiks og skemtunar handa unglingum.
Útgefendur: Jón Helgason og Abalbj'órn Ste/ánsson, prentarar. i.—2. h.
Rvík 1905—6.
Sögurnar, kvæðin, myndirnar, skrítlurnar o. fl. í þessum heftum
eru vel fallin og hent fyrir unglinga. Flest af því er þýtt, en þó er
ýmislegt frumlegt innan um. Eitt eða tvö hefti eiga að koma út á ári,
og hafa undirtektir almennings verið svo góðar, að útgefendur sjá sér
fært að halda áfram. /. St.
NÝTT KIRKJUBLAÐ. Hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og kristi-
lega menning. Rvík 1906.
Blað þetta, sem hóf göngu sína um áramótin síðustu, er eins
konar áframhald af hinum eldri kirkjublöðum, »Kirkjublaðinu« og
»Verði ljós«, sem bæði féllu í valinn sökum kaupendafæðar eða van-
skila, þótt bæði hefðu eigi alllítið til síns ágætis. Ritstjórar þess eru
sömu mennirnir og út gáfu eldri blöðin, prestaskólakennararnir Jón
Helgason og í’órhallur Bjarnarson, og má því búast við, að
þetta blað muni ekki standa hinum að baki, er þeir leggja saman
krafta sína. Það er og sannast að segja, að blaðið fer vel af stað og
er svo myndarlega úr garði gert, að synd væri af kristindómsdómsvin-
unum íslenzku að láta það deyja í höndunum á þeim. V. G.
•
SKÝRSLA UM BÚNAÐARSKÓLANN Á HVANNEYRI 1903—
1905. Rvík 1906.
Skóli þessi varð fyrir því óhappi 1903, að skólahúsið brann og
mjög litlu af dauðum munum varð bjargað. IJetta hefir auðvitað verið
mikill hnekkir fyrir skólann, en nú virðist hann vera búinn að ná sér
aftur eftir það áfall og standa með allmiklum blóma. Eignir skólans
eru alls nál. 86,000 kr. og af þeim skuldlausar nál. 56,700 kr. Bú-
skapur hans virðist því í góðu lagi og honum yfirleitt vera vel stýrt.
Nemendafjöldinn er reyndar ekki mikill, en »það hefir aldrei verið til
þess ætlast«, segir amtmaður J. Havsteen í niðurlagi skýrslunnar, »að
hafa skólann stærri eða yfirgripsmeiri, en að hann rúmaði 10—12 nem-
endur, og frá því stofnun þessi reis úr niðurlægingu sinni upp úr árinu
1894, hafa að jafnaði verið undir það 10 piltar á skólanum, 8 oftast,
og eru þeir nú 9, sem þannig er eigi nein afturför. Hvanneyrarskól-
inn er langtum betur út búinn að öllu leyti, en samskonar stofnanir
aðrar hér á landi; bæði hin bóklega og verklega kensla hefir þar fram
farið af fullri alvöru, og piltar, sem haft hafa einlægan vilja á að afla
sér verulegrar kunnáttu í búfræði, hafa þangað sótt«. V. G.
ÁRSRIT RÆKTUNARFÉLAGS NORÐURLANDS 1905. Akur-
eyri 1906.
Rit þetta inniheldur fyrst skýrslur (fundargerð, reikninga, um til-
raunir o. fl.) um hag og horfur félagsins, og sýna þær, að því miðar
drjúgum áfram. Félagsmenn nú orðnir um 1000. f’ví næst er í ritinu
fjöldi af fróðlegum ritgerðum, sem oflangt yrði upp að telja, en allar
þess efnis, að enginn góður bóndi ætti að láta undir höfuð leggjast
að kynna sér þær. V, G.