Eimreiðin - 01.09.1906, Blaðsíða 66
226
lindir sínar til fjárhagslegs ágóða fyrir þjóðina, að því sé fijálst að
skipa högum sínum samkvæmt því, sem þörf lands og þjóðar krefur.
Rtkisþing Dana mun að öllum líkindum þegar á komandi þingi
(1 haust) taka að fást við þessi íslenzku mál. t’að mun þá vissulega
sýna sig, að heimsókn alþingis mun bera góða ávexti, sumpart með því,
hve menn nú gefa íslandi margfalt meiri gaum eftir heimsóknina, og
sumpart með þeirri auknu þekkingu á högum íslendinga, sem danskir
ríkisþingsmenn hafa fengið við samvistina við stéttarbræðurna íslenzku«.
í þriðju greininni er langt mál um, hvað gera eigi frá Dana
hálfu til þess að koma betur fótum undir atvinnuvegi íslendinga,
og á hvern hátt eigi að gera það, svo að íslendingar sjálfir, en
ekki danskir auðkýfingar, njóti hagnaðarins af því. Par er því
meðal annars haldið fram, að þar sem fiskiveiðarnar samkvæmt
stöðulögunum séu sérmál Islands, þá sé auðsætt, að fiskiveiðar
í landhelgi við Island séu eingöngu eign Islendinga, en ekkiDana.
Þeir eigi þar einskis frekari réttar að njóta en aðrir útlendingar.
Skorar blaðið sterklega á íslendinga að gjalda vel varhuga við
dönskum auðkýfingum, sem nú séu að fara á kreik til að teygja
klær sínar út til íslands.
»K0BENHAVN« (einasta blað stjórnarflokksins í Khöfn, annað
en blað Albertis »Dannebrog«, sem náttúrlega vill sem minst um
endurskoðun tala) flytur 31. júlí grein um heimsókn þingmanna og
skýrir þar meðal annars frá þinghússfundinum, sem það lætur
stjórnina hafa kallað saman. En það ritar mjög varlega um
hann, skýrir ekki frá, hverjar kröfur íslendinga hafi verið, en segir
aðeins, að ekki hafi á vantað, að þær hafi verið greinilegar, og að
það sé sannfæring blaðsins, að samkomulag um þær muni
nást. En meiri áherzlu leggur þó blaðið á annan fund, sem
innanríkisráðgjafinn hafi samankallað og nokkrir þingmenn tekið
þátt í, til að ræða um samvinnu milli Dana og íslendinga í at-
vinnumálum til fjárhagslegs hagnaðar fyrir hvoratveggju, og á þar
einmitt við samskonar tilraunir frá Dana hálfu, sem »Social-Demo-
kraten« varar Islendinga mest við í síðustu grein sinni.
»NATIONALTIDENDE« (hægriblað) flytur 4-ág. alllanga grein
Aim málið, þar sem skýrt er frá kröfum íslendinga, og þær svo að
lokum dregnar saman í eina stutta setningu, sem höfð er eftir einum
alþingismanninum: »Við viljum hafa sameiginlegan konung
og sameiginlegan fána. Við viljum halda áfram að vera í sam-