Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Page 2

Eimreiðin - 01.09.1906, Page 2
og enn tíðkast norðan til á Finnlandi, þar sem karlmenn og kven- menn hafa baðað sig saman í mestu makindum án þess að finna til minstu blygðunar við að sjá hvert annað nakið. — Pess er og getið í sögunum að þegar menn voru á Pingvelli, var það algengt að þvo sér á morgnana í Öxará áður en þingfundir byrjuðu, og ekki gleymir Kormákssaga að geta þess, að Kormákur lét sér eigi nægja méð að fá móður sína til að sníða sér laglegan klæðnað til þess að falla Steingerði betur í geð, heldur þvoði hann sér einnig vandlega áður en fundum þeirra bæri saman. Líkt er og sagt um Gunnlaug ormstungu, þegar hann var að draga sig eftir Helgu fögru. Pegar Arnórr jarlaskáld yrkir til konungsins: .... meiri verði þinn en þeira þrifnaðr allr, unz himinn rifnar. notar hann þar orðið þrifnaður í óeiginlegri merkingu, en þetta sýnir hversu hann setur þrifnaðarhugmyndina hátt, líkt og aðrir fornmenn. Mörg dæmi fleiri mætti tilfæra úr sögunum þessu máli til sönnunar, en þess gjörist eigi þörf. Enn þá er baðstofa á hverjum bæ á íslandi, en ekki þekki ég þó neina baðstofu, sem getur réttilega kallast svo. Pó telja megi íslendinga með hinum skynsömustu og gáfumestu þjóðum, verður því hins vegar ekki neitað, að þeir standa mörgum þjóðum að baki hvað þrifnað snertir. Margir útlendingar, sem hafa ferðast heima, hafa fundið að þessu, og í flestöllum ferðabókum um ísland má finna langar klausur urn óþrifnaðinn. Pó margt af því sé ýkt, eins og vant er að vera í ferðabókum, þá er eigi neinum blöðum um það að fletta, að í meginatriðunum hafa þessir menn rétt að mæla. Enginn út- lendingur hefur þó á seinni árum flett jafn óþægilega ofan af óþrifnaðinnm, eins og prófessor Ehlers, sem ferðaðist í holdsveikis- rannsóknum á íslandi 1893— 4. Pað mun flestum vera í minni, hve megn óánægja reis út af því, og hve mörgum óvildarorðum var farið um Ehlers fyrir þetta. En það er skoðun min, að í öll- Um aðalatriðum hafi hann haft rétt að mæla. Óþrifnaður er, því miður, algengur löstur meðal alþýðu á ís- landi. Pví ber ekki að neita, að í öðrum mentuðum löndum í Norðurálfu má finna óþrifnað langtum meiri en á óþrifaheimilum á Islandi, og það jafnvel í höfuðbólum menningarinnar, eins og í Lundúnum og Parísarborg; en þess ber að gæta, að á íslandi

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.