Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 4

Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 4
164 Læknarnir þvo sjálfum sér og sjúklingunum svo vandlega, að sumum liggur við húðleysi á eftir. Allir eru íklæddir tárhreinum snjóhvítum fötum, og sárin varla snert, nema með þvegnum og soðnum verkfærum. Nú þykir öll sárasótt og hitaveiki óeðlileg og óleyfileg eftir flesta skurði, en lífshættan við holskurði og stærri óperatiónir hefur rénað svo, að þær þykja leikur einn, ef ástand sjúklingsins er eigi altof bágborið. það er ef til vill of mikið sagt, sem franskur læknir segir: »Menn geta nú jafnóhult farið með hendur sínar inn í kviðarhol manna og niður í vasa sinn«, — en sé það svo, þá má aðallega þakka það þrifnaðinum. Annað dæmi sýnir og ljóslega þýðingu þrifnaðarins. Fyr á öldum voru allar borgir og bæir í Norðurálfu mestu óhollustustaðir og stóðu langt að baki landsbygðinni, hvað alment heilsufar manna snerti. Landfarsóttir gusu vanalega upp í bæj- unum og útbreiddust þar, sem óstöðvandi eldur í sinu, og þaðan út yfir landið, en síðan land úr landi um alla álfuna. þannig gekk Svartidauði eða pestin mikla yfir alla Evrópu á miðöldunum, taugaveiki, hvað eftir annað, holdsveiki, bólusótt, kólera og ótal fleiri sóttir, og máttu »svo með sanni slyngum þeim sláttumanni, samlíkjast þykir mér, sem slær alt, sem fyrir er« eins og stendur í sálminum. þá voru líka borgir í Evrópu með öðru sniði en nú tíðkast. Húsum og hreysum var hrúgað saman á tiltölulega litlu svæði, í einni bendu, göturnar voru langar, én bognar og krókóttar og svo örmjóar, að gaflar og veggir sitt hvoru megin náðu næstum saman. í húsunum var lágt undir loft, en gluggarnir fáir óg smáir, svo að sífelt myrkur drotnaði. Fyrir afrás alls óþverra var lítið hugsað; kamrar og kyrnur fengu að fyllast upp og yfir barma, áður en rótað var við þeim, en ræsi voru ýmist engin eða þá opin, eða illa lokuð göturæsi með engum straumhraða, nema þegar náttúran hjálpaði til, með helliskúr úr lofti. Slík göturæsi, og að mörgu leyti sams konar bæjarbrag, má enn þá sjá í Reykjavík og öðrum kaupstöðum Islands, og samskonar snið á stærri borg- um má enn þá finna austur í Kína og víðar hjá ósiðuðum þjóðum. Enn þar er líka enn þá ástandið sama og var f Evrópu á mið- öldunum. þar koma upp stórsóttir árlega, sem halda áfram tálm-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.