Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Page 49

Eimreiðin - 01.09.1906, Page 49
209 Eftir sólarhrings dvöl við Geysi í Haukadal komum við þegar næsta dag seint um kvöldið til Brúarárfossins (sjá mynd 6), sem er einnig einkennilegt straumfall, með því að Brúaráin rennur þar afarbreið yfir ótéljandi sundurslitna hraun- kletta; og enn ein dagsreið vestur á bóginn flutti okkur til hins helgasta staðar á íslandi, Eingvalla og Öxarárfossins (sjá mynd 7) í Almannagjá, þess staðar, sem hinn enski stjórnvitringur Dufíerin lávarður einu sinni hefur sagt um, að það sé þess vert að fara umhverfis alla jörðina einungis til þess að sjá hann. Síðasti fossinn, sem ég hér birti yður mynd af, kæru lesendur, er hann Glanni (sjá mynd 8) í Norðurá í Brekkuhrauninu, skamt frá Arnarholti í Mýrasýslu, þar sem ég var einn á ferðinni, með því að Bjarni minn og Indriði voru farnir beint heim frá Hvammi, eins og ég gat um í byrjun þessarar greinar. Jæja, hún var undursamleg, þessi ferð mín á íslandi sumarið 1905, og aldrei mun ég gleyma þeim sælutímum, sem ég hef lifað hjá þér, eldgamla, ástkæra ísafold! Margt gott og fagurt hafði ég heyrt og lesið um þig, þú mikla kynjaland, áður en ég fór til þín; en nú, er ég hef séð þig með eigin augum, veit ég, að aldrei mun nokkurt land þykja mér fegra, aldrei mun nokkurt land verða mér kærra en einmitt þú! Og sannast þá aftur rétt einkennilega hinn gamli málsháttur: »Sjón er sögu ríkari.« í júní 1906. Varel í Oldenburg. Athugasemd. Myndirnar í ritgerð þessari eru teknar af höfúndinum sjálfum. Hann hefir og sjálfur samið ritgerðina á íslenzku. RITSTJ. Anatole France. Georg Brandes kveður svo að um frakkneska rithöfundinn Ana- tole France, að enginn þeirra manna, sem nú eru uppi, kunni betur að halda á penna en hann. France varð seint frægur, þrátt fyrir aðdáanlega ritsnild sína, og kemu? það sjálfsagt til af því, að í bókum hans er mikið umhugsunar- efni. Það væri mjög mikill misskilningur að ætla, að það séu beztu bækurnar, sem eru mest lesnar. Þvert á móti. f'að sem í andlegum efnum á að »þóknast miljóninni« — eins og Sbakespeare segir — 14

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.