Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 57

Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 57
217 Sýnishorn íslenzku frá 16. öld. Áriö 1555 gaf vísindamaðurinn Conrad Gesner í Zíirich út bók sína »Milhn'dates«, sem var fyrsta yfirlitið, er nokkuð kvað að, yfir öll þau tungumál, bæði lifandi og dauð, sem menn þá kunnu skil á. Eins og svo oft hefir verið gert á síðari tímum notaði hánn þar sem sameiginlegan texta Faðirvorið eða hina drottinlegu bæn, *ut et facilius essei conferre inter se linguas quae orationem exprimerent eandem: et in brevissimo sanctis- simoque argumento id fieret. Á bls. 40 a. sýnir hann »Faðirvor« á íslenzku, og er það, að minni vitund, elzta sýnishornið af íslenzkum texta, sem birt hefir verið fyrir utanNorður- lönd, og hefir það að því leyti nokkra sögulega þýðingu. Áður en bók Gesners kom út hafði Faðirvor verið prentað á íslenzku í Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar, sem kom út í Hróarskeldu 1540. Herra bókavörður Sigfús Blöndal hefir sýnt mér þá góðvild að senda mér afrit af þeirri þýðingu á Faðirvori bæði í Lúkasarguðspjalli og í Matteusarguðspjallinu. Sýnir hin mismunandi orðaskipun1 ótvíræðlega, að Gesner hefir ekki tekið sinn texta eftir prentuðu þýðingunni, enda mundi hann þá heldur ekki hafa vanrækt að geta um heimildarrit sitt, því á öðrum stöðum getur hann heimilda sinna. Annars þarf ekki slíkra vitna við, því hin hræðilega meðferð hans á textanum sýnir, að hann getur ekki hafa tekið hann eftir neinni prentaðri bók. Af öðrum stöðum í Mithridates má og sjá, að Gesner hefir gert sér far um að útvega sér uppskriftir af Faðirvori á útlendum tungum, og í hinu íslenzka Faðirvori hans eru villur, sem ekki er unt að skýra öðruvísi, en að þær stafi frá misskilningi eða mislestri á skrifuðum texta. Eg set nú hér texta Gesners og bæti svo við undir hverri sérstakri bæn þeim texta, er gera má ráð fyrir að hann hafi haft fyrir sér. 1 í þriðju bæninni hjá Gesner (verdi tinn vile, suoms ai himme, so ai podu) er »himininn« fyrst nefndur, en síðan »jörðin« í samræmi við gríska og latneska text- ann hjá Matt. 6, io. En í Testamenti Odds frá 1540 stendur: verdi pin vilie so a jfordu sem a himne, og eins i Guðbrandarbiblíu frá 1584: so a Jordu sm a Himne. í texta I.úkasar vantar þriðju bænina, en í báðum íslenzku þýðingunum er henni skotið inn eftir texta Matteusar.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.