Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Qupperneq 72

Eimreiðin - 01.09.1906, Qupperneq 72
232 þú ert svipköld um enni, í auga heit — ég elska þig fjalladrotning. Bláfjöllin standa í breiðfylking sem bergrisavörður um Rangárþing. Ljóða lækir við bakka. — Þyrlast niður af Þríhyrning þokan um græna slakka. Vér óskum og vonum, að þessi tvö ungu skáld feti í sporin, sem þeir hafa stigið, og verði með tímanum taldir meðal öndvegisskálda á íslenzka tungu. J. St. ÓDAUÐLEIKI MANNSINS. Tvær ímyndaðar mótbárur gegn ódauðleikakenningunni eftir William James prófessor í heimspeki við Harvard háskóla. Gubm. Finnbogason þýddi með leyfi höfundarins. Rvík 1905. Eigi Guðm. Finnbogason þökk skilið fyrir það snjalltæði, að þýða hina ágætu fyrirlestra próf. James, sem hann hélt árið 1898 við Inger- soll-stofnunina á Harvard-háskóla í Ameríku. íslendingar eru sumir á reiki og hálfvinglaðir, að því er snertir hinar dýpstu ráðgátur mannlífs- ins. Ætli sumir mentamenn vorir haldi ekki, að sálarlífið sé verkun heilans og deyi með honum. í’að sé hjátrú og hindurvitni að trúa á annað líf. Próf. James segir, að helztu vísindamenn nútímans standi getgátulausir uppi gagnvart því, að heilinn framleiði meðvitund, sem er alveg ósamkynja eðlis. Meðvitundin sé til, bak við tjöldin, samtíða heiminum, og heilar vorir séu eins og gler, er hleypir inn glætu frá henni. Líkaminn er þá ekki orsök sálarlífsins, heldur aðeins takmörk- unarskilyrði þess, eins og Kant segir. Sýnir hann að þetta sé líkleg- asta ráðningin á ráðgátu lífsins, frá sjónarmiði skynseminnar. Ég vil skora á Guðm. Finnbogason að þýða hina ágætu fyrirlestra J. A. Balfours —- sem var ráðaneytisforseti Bretaveldis 1895—1905» og fór frá um nýjárið — í hinu brezka vísindafélagi, um skoðanir vísinda- manna á heiminum og ráðgátum hans, og hvernig þær hafa breyzt við uppgötvun radíums o. fl. Eðlisfræðingar hafa fundið, að í hvetju »atómi« eru »negatívar« og »pósitívar« rafmagns-sveiflur, sem halda þeim út af fyrir sig. í’egar tilveran er rakin út í æsar, eru það öfl, kraftar (forces) og ekki efni (matter), sem eru grundvöllur alls í heiminum. Fyrirlestur Balfours hefir verið þýddur á ýms mál. J. St. SUMARGJÖF, II. ár. Utgefendur: Bjarni Jónsson og Einar Gunn- arsson. Rvík 1906. Oss finnast kvæði Jónasar Guðlaugssonar í hefti þessu vera tilþrifa- mest, en »Kveðið í gljúfrum« eftir Jóhann G. Sigurðsson er ljómandi draugakvæði. Draugurinn kveður í gilinu, að nú séu átján orðnir úti þar, en hann vill hafa nítján með sér, og er svo að teygja menn þangað. Lagleg kvæði eftir Lárus Sigurjónsson og óprentað kvæði eftir Ben. Gröndal eru í heftinu, og ritgjörð um Bæjarstaðaskóg eftir Helga Jóns- son. Annars er bókin að efni til yfirleitt fremur lagleg og alþýðleg. /. St.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.