Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Page 4

Eimreiðin - 01.01.1910, Page 4
4 upp á himni hinnar nýju aldar, en hvað dagsbrúnin boðar, er enn þá öllum hulið. Vísindin verða að byggja á því, sem áður hefir verið gjört, og engar framfarir eru hugsanlegar, nema þær vaxi upp úr rann- sóknum fyrri tíma. Enginn vísindamaður getur komið neinu til leiðar, nema hann sé nákunnugur öllu því, sem áður hefir verið gjört í hans grein. Pað er því örðugt að rita fullskiljanlega fyrir alþýðu manna um vísindaleg efni; til þess í raun og veru að skilja vísindalegar tilraunir og rannsóknir, þarf mikla sérþekkingu. I alþýðlegum ritgjörðum verða menn því oftast að láta sér nægja að setja fram árangur rannsóknanna án þess að geta gjört les- endunum fullkomlega ljóst, á hvern hátt vísindin hafa komist að þessari eða hinni niðurstöðu í einstökum greinum. Pað hefir hingað til verið skoðun manna, að alheimurinn væri samsettur af tiltölulega fáum (um 80) frumefnum, sem ekki væri hægt að sundurliða, og að hinar minstu einingar hvers frumefnis væru ódeilanlegar frumagnir (atóm) afarsmáar; en þegar frumefnin sameinuðust í sambönd þau, sem dauðir og lifandi hlutir eru bygðir af, væri það frumagnir hvers frumefnis, sem samtengdust eftir vissum þyngdarhlutföllum í sameindir (mólekúla). Að þessu höfðu menn komist með hinum nákvæmustu rannsóknum í efna- fræði, eðlisfræði og stærðfræði, og menn hafa jafnvel getað mælt stærð atóma og mólekúla, þó hún sé langt fyrir neðan það, sem menn geta séð í beztu sjónaukum. fað hefir t. d. verið reiknað, að 50 þúsund triljónir1 vatnsefnis-atóma geti rúmast innan í vanalegum títuprjónshaus. Nú eru kenningar manna um frumefnin farin að taka miklum breytingum, en rannsóknir þar að lútandi eru rétt að byrja, og ófyrirsjáanlegt, hvert þær muni leiða. Menn eru farnir að sjá, að einstök hinna svo kölluðu frumefna geta breyzt í önnur frumefni, og ef vísindamenn öðlast almenna kunnáttu til aö framkvæma slíkar breytingar, getur það í framtíðinni orðið til þess, að um- turna mannlífinu. Eins og kunnugt er, leiðir loftið illa rafmagn, en franskur náttúrufræðingur, Becquerel að nafni, varð var við, að úran- málmur einn sendi frá sér einkennilega geisla, sem hafa þau áhrif á loftið, að það verður leiðandi fyrir rafmagn; verka þeir enn- *) Sú tala er rituð með 16 mJUum.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.