Eimreiðin - 01.01.1910, Page 5
5
fremur á sérstakan hátt á ljósmyndaplötur og framleiða ljós-
bjarma hjá ýmsum efnum. Úran er frumefni, sem unniö er úr
hinum svo kallaöa úran-bikmálmi, sem helzt fæst í Jóachímsthal í
Bæheimi; úran er annars notað í glergjörð, við litun á glerbræðslu
o. fi. Nú tóku margir eðlisfræðingar að gjöra tilraunir með þetta
efni og geisla þessa, en hlutskörpust varð frú Sklódówska
Curie, pólsk að ætt, gift frakkneskum eðlisfræðingi P. Curie.
Eftir margra ára leit og tilraunir tókst henni loks að finna efni,
sem var enn þá meira geislamagnað (radíóaktívt) en sjálft úranið;
efni þetta er síðan frægt og heitir radíum. Frú Curie útvegaði
sér heila smálest (2000 pund) af bikmálmi, og með því að sund-
urliða allan þenna málm, tókst henni að finna 2—3 tíundu hluta
úr grammi af hinu nýja efni, en gramm er fimmhundraðasti hluti
úr pundi, sem kunnugt er. Von er þó radíum sé dýrt.1 Radíum
hefir síðan verið undraefni, sem mikið hefir verið talað um, enda
hefir það furðulega eiginlegleika. Auk þess fundust síðar í sama
málmi tvö ný frumefni pólóníum og aktiníum, sem hafa svipað
eðli eins og radíum; frumefnið ihóríum er einnig geislamagnað á
sama hátt.
Hinir ensku náttúrufræðingar Raleigh lávarður og W. Ram-
say háskólakennari fundu 1895 nýtt frumefni í loftinu, sem þeir
kölluðu argon, síðar fann Ramsay um aldamótin þrjú ný loftefni,
kryptón, neón og xenón; auk þess hafði hann 1895 fundið
helíum, sem menn reyndar með ljósrannsóknum áður höfðu fund-
ið í sólinni, en ekki fyr hér á jörðu. 011 eru þessi 5 efni litlaus-
ar lofttegundir, sem ekki geta sameinað sig neinum öðrum frum-
efnum. Eftir að radíum fanst, tóku hinir gáfuðustu núttúrufræð-
ingar í Evrópu og Ameríku með miklu hugviti að rannsaka eðli
þess, sérstaklega frú Curie og maður hennar, bæði jafnágætir
eðlisfræðingar,2 er framkvæmdu rannsóknir sínar í sameiningu. Pá
hefur snillingurinn Ramsay ekki látið sitt eftir liggja og hefir hann
líka gjört ýmsar mikilsverðar uppgötvanir, er snerta radíum.
Menn tóku líka eftir því, að radíum sendir frá sér einkenni-
lega geisla með öðru eðli, heldur en áður hafði þekst, eiginlega
þrennskonar geisla og þá einnig afarmikið afl (energi), sem virð-
J) Eitt gTamm af radíum kostar nú 70—80 þúsund krónur.
2) Hjónin Curie fengu líka í sameiningu Nóbel-verðlaunin fyrir rannsóknir
sínar, en litlu síðar varð P. Curie undir vagni í París og beið bana, en frú Curie
var veitt embætti það við háskólann, er maður hennar hafði haft.