Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 7
7
til þess, aö einhver eining liggi til grundvallar fyrir þeim öllum,
að menn hafa getað raðað þeim niður í kerfi eða flokka í vissum
talnahlutföllum eftir atómþyngd og öllum eiginlegleikum. Rúss-
iskur efnafræðingur Dmitri Mendelejew hefir einna mest feng-
ist við þesskonar rannsóknir, og hann gat meðal annars sagt
fyrir, að til hlytu að vera þrjú óþekt frumefni, og sagði líka fyrir
eiginleika þá, sem þau ættu að hafa. Löngu seinna fundu efna-
fræðingar frumefni þessi, spádómur Mendelejew's rættist fullkom-
lega; nú heita frumefni þessi skandium, gallíum og germaníum.
Öll þessi fyrirbrigði eru þó enn í þoku, en efnafræðingar sjá
frammi fyrir sér mikið verksvið, og hugvit þeirra hefir þar um
langan aldur margar getgátur að glíma við.
Einsogfyrvar getið, framleiðir radíum afarmikið afl (energi),sem
helztkemur fram sem hiti; af þvímáráða, aðatóminaðöllum líkindum
gætu sundurliðast og hlutar þeirra aftur sameinast til nýrra frum-
efna, ef hægt væri að láta nógu sterkt afl, líklega í rafmagnsformi,
verka á þau. Pað er því ekki lengur hreinn hugarburður, að þab
síðar kunni að takast að breyta einu efni í annað, ódýrum málm-
um í dýra o. s. frv. Hver veit nema draumur gullgiörðarmanna
frá miðöldunum rætist, að efnafræðingarnir geti búið til eins mikið
gull eins og þeir vilja, en af því hlyti að leiða þá bylting á öllu
viðskiftalífi heimsins og á sögu þjóðanna, sem ekki er hægt að
gjöra sér neina hugmynd um. Nú eru lífsstörf frymisins hjá líf-
rænum hlutum líka komin undir eðli og styrkleika þess afls, sem
í þeim býr, og það er því eigi alveg óhugsanlegt, að það ein-
hverntíma í framtíðinni eigi fyrir mannkyninu að liggja, að finna
ráð til þess, að viðhalda starfsþreki hinna smæstu, lífrænu frum-
parta líkamans með einhverjum ódáinsvökva, sem þannig geti
lengt líf einstaklingsins. En það er þarfleysa að bollaleggja nokk-
uð um það, sem enn er hulið í þoku ókominna alda.
Um öfl náttúrunnar hafa menn líka á seinni árum feugið margar
nýjar upplýsingar, sérstaklega hafa menn rannsakað ýmsa svo
kallaða geisla, sem menn áður ekki þektu. Hér yrði of langt
að fara út í þá sálma með nokkurri nákvæmni; vér aðeins nefn-
um fátt eitt. Flestir munu hafa heyrt getið um hin undursam-
legu fyrirbrigði, sem Röntgen-geislarnir sýna; með þeim geta
menn gegnum holdið skoðað sína eigin beinagrind. Á spítölum
erlendis verða geislar þessir nú að miklum notum, þegar leita skal
fastra líkama innan í mönnum. Röntgen-geislarnir fara beint eins