Eimreiðin - 01.01.1910, Page 8
8
og ljósgeislar, ganga ekki gegnum málma og bein, en gegnum
hold og marga aðra hluti; ýms bjarmaberandi efni geta breytt
þeim í alment ljós, og þeir hafa áhrif á ljósmyndaplötur. Pá eru
Becquerel-geislarnir, sem fyr voru nefndir, þrennskonar radíum-
geislar, sem innbyrðis hafa töluvert mismunandi eðli; geislar
þessir kastast eigi aftur frá gljáandi fleti og brotna eigi sem ljós-
geislar, en þeir bogna af áhrifum segulstáls. Pá eru anóðu- og
og katóðu-geislar, sem sjást þar sem rafmagn fer í gegnum loft-
tómt rúm eða loftþynt rúm innan í lokuðu glerhylki og framleiða
þar ýmislegan, undarlegan ljósbjarma. Geislar þessir eru allir að
eðli sínu ólíkir vanalegum hita- og ljósgeislum, og hafa eðlis-
fræðingar á seinni árum með mikilli ákefð rannsakað náttúru
þeirra, og meðal annars komist þar að mörgu, sem skýrir upp-
runa og eðli rafmagnsins.1
Rannsókn katóðugeislanna hefir meðal annars gefið nýjar upp-
lýsingar um norðurljósin, sem menn áður áttu í vandræðum með
að skilja. Nú vita menn að norðurljósin eru rafmagnsfyrirbrigði,
neikvætt (negativt) rafmagn (katóðugeislar) kringum segulskaut
jarðar á 15-—25 mílna hæð yfir sævarflöt. Ljósrannsóknir sýna,
að þar verða óteljandi rafmagnsslög eða leiftranir, svo lofttegundir
verða lýsandi, og ljósband þeirra hefir sýnt, að þar, svo hátt yfir
jörðu, er meðal annarra loftefna einna mest af kryptón, sem ann-
ars er svo fágætt neðar í lofti, að menn við yfirborð jarðar finna
aðeins einn hluta af kryptón í sjö miljónum hluta af andrúmslofti.
Eðlisfræðingar þykjast nú, einkum við rannsóknir J. Thom-
son’s í Cambridge, orðnir sannfærðir um, að neikvæða rafmagnið
sé straumur af ótrúlega smáum ögnum, er þeir kalla elektróna;
þær þjóta áfram með ógurlegum hraða, og hver þeirra er eigi
stærri en 700. hluti úr vatnsefnis-frumögn. Jákvæða (pósitíva) raf-
magnið svo kallaða er að skoðun þeirra aðeins vöntun rafmagns,
straumleysi; elektrónarnir eru aðeins einnar tegundar. Hér ber
alt að sama brunni. Eins og vér fyr gátum um, hafa efnafræð-
ingarnir komist að svipaðri niðurstöðu um samsetningu atómanna.
Áður voru þau álitin ódeilanleg, einsog nafnið ber með sér (atóm
= ódeili), hið minsta sem til væri, frumeindir veraldar. Nú er
öll sú bygging hrunin. Nú hefir þegar verið skygnst svo djúpt
') Tilraunir með þessar nýju geislategundir eru eigi hættulausar, sumir nátt-
úrufræðingar hafa lemstrast og aðrir biðið bana af að fást við þá.