Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 12

Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 12
12 aö vera óveganlegur, en um leið ótrúlega þanþolinn, fjaðurmagn- aður og teygjanlegur og þó óhreyfanlegur í heild sinni. Alt þetta er hvað upp á móti öðru, og menn eru jafnnær um hið eiginlega eðli efnis þess, er þeir ætla að fylli allan geiminn. Margir eðlis- fræðingar segja því, að í raun réttri sé ekki hægt að einkenna eðli Ijósvakans með eiginleikum, sem mannlegur skilningur að svo stöddu geti gripið. Pá hefir það ennfremur valdið miklum heilabrotum hjá eðlisfræðingum og stærðfræðingum, að reyna að skilja, hvað þyngdarlögmálið er í raun og veru. Sá náttúrukraftur er ólíkur öllum öðrum og stendur í engu sambandi við þá. Eng- inn annar kraftur getur haft áhrif á þyngdaraflið, beygt það af leið eða breytt því, hvorki ljós, rafsegulmagn eða neitt annað. J’etta náttúruafl er sérstakt og einstakt og verkar á alla líkama, sem vér þekkjum. Áhrif þyngdarinnar verða á sama augnabliki, hvað mikil sem fjarlægðin er; menn hafa ekki getað séð, að þar þyrfti neinn tíma til, og Laplace reiknaði þegar fyrir löngu, að hraði þyngdaraflsins hlyti að minsta kosti að vera 500 miljónum sinnum meiri en hraði ljóssins, en ljósið fer, sem kunngt er, 40 þúsund mílur á sekúndu. fað hefir hingað til verið grundvallarhugsun allrar eðlisfræði, að öll fyrirbrigði náttúrunnar væri í raun réttri hreyfing í ýmsu formi og náttúran að öllu leyti hlýddi hinum stærðfræðislegu lög- um aflfræðinnar, eða með öðrum orðum, að öll fyrirbrigðin væri »mekanisk«. Menn ætluðu, að það væri hugsanlegt, að vísindin einhvern tíma kæmust svo langt, að ákveða mætti legu og hraða efniseindanna, og þá leiddi af því, að hægt væri að segja fyrir og ákveða alt það, sem fyr og síðar á sér stað í ríki náttúrunnar. Þessar grundvallarhugsjónir eru menn líka farnir að kryfja og kanna. Eðlisfræðingarnir íhuga nu og athuga, hvort það sé í raun og veru fullsannað, að ekkert sé annað til í hinni skynjan- legu náttúru en efni og hreyfing, og hvort það sé ekki aðeins af vana, að vér heimfærum uppruna fyrirbrigðanna til aflfræðislag- anna, því skilningarvit vor séu hinir einu gluggar, sem snúa út að tilverunni, svo vér sjáum hana eingöngu frá einni hlið. Al- heiminn þekkjum vér aðeins af áhrifum þeim, sem hann hefir á skilningarvitin, en líffæri vor geta aðeins gripið þessi áhrif í ýmis- legu hreyfingarformi. Hvaða sönnun höfum vér fyrir því, að skynjan vor geti gripið hina sönnu mynd tilverunnar, enda játa

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.