Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Side 13

Eimreiðin - 01.01.1910, Side 13
13 hinir frægustu stærðfræðingar og eðlisfræðingar, að það sé í raun og veru ómögulegt, að finna alveg fullkomna og óyggjandi sönn- un og aflfræðisskýring fyrir nokkru einasta fyrirbrigði náttúrunnar. Heilabrot um þetta og efasemdir af ýmsu tægi hafa því nú á dögum mikil áhrif á störf stærðfræðinga og eðlisfræðinga, sem dýpst leita, og knýja þá til hinnar ýtrustu nákvæmni við tilraun- irnar og við sundurliðun þeirra ályktana, sem af þeim má leiða. Flestir eðlisfræðingar gefa þessum ráðgátum þó lítinn gaum; þeir vinna með óþreytandi elju að rannsókn þeirra fyrirbrigða, sem næst liggja og verklega þýðingu hafa fyrir almenna framför þekk- ingarinnar, og til beinna nota mega verða fyrir mannkynið, en þeir gera engar tilraunir til þess, að draga blæjurnar af leyndar- dómum tilverunnar. Menn eru altaf að færa út takmörk þekkingarinnar, en heims- gátan er enn jafn-óráðin eftir sem áður. Hvað efni og afl er í raun og veru, veit enginn, hvaðan það er upprunnið eða hvort það er eilíft, hver tilgangurinn er með öllu þessu, eða hvort það er enginn tilgangur, um það geta vísindin ekkert sagt. f*að, sem liggur bak við tilveruna, er fyrir utan vísindin og hinu megin við takmörk mannlegs anda. Hinir miklu náttúrufræðingar, sem bera vísindi nútímans í höfði sér og byggja undirstöðu framtíðarinnar, taka allir undir með Newton, er hann sagði: »Eg veit ekki hvaða skoðun almenningur hefir á mér, en í sjálfs míns augum finst mér ég líkjast dreng, sem leikur sér við sævarströnd og skemtir sér með því endur og sinnum að finna óvanalega sléttan stein eða fallega skel, — en á meðan liggur hið mikla úthaf sannleikans alt órannsakað fyrir utan mig.« Úr yngsta kveðskap Svía. Eftir MATTH. JOCHUMSSON. GUSTAV FRÖDING: HETJULJÓÐ UM DANSLEIK. I. Nú skal sögu segja litla hríð: Mín sál var ung og fremur gljúp en stríð.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.