Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Side 24

Eimreiðin - 01.01.1910, Side 24
24 Nú vildi ég gjarna heyra álit þitt um þetta, kæri sonur. Ég vil auðvitað eklci hrapa að neinu, en ég vil ekki heldur kasta þessu frá mér umhugsunarlaust eða umhugsunarlítið. Ef það er satt, að smálestin af þurkuðum mó fáist fyrir 2—3 krónur, en útsöluverð hennar sé 6—7 krónur, þá er hér um sýnilega arðsamt fyrirtæki að ræða. Mórinn í mýrinni er þá auðvitað mörg hundruð þús- und króna virði og mýrin hlýtur að endast til móskurðar um marga, marga tugi ára — marga mannsaldra, meira að segja. Kostnaðurinn við að flytja móinn þangað, sem þörf er fyrir hann, einkum til Noregs, eða Reykjavíkur, er ekki hræðilegur, þar sem skip ganga hér stöðugt á milli, og iðulega tóm eða hálftóm; enda hefir Jónas prammi boðið mér að flytja móinn til Noregs fyrir lítið. En auk alls annars er það hverju orði sannara, sem ung- mennafélagsmenn segja, að það er skrælingjaskapur og ófyrirgef- anlegur amlóðaháttur, að láta móinn liggja ónotaðan í jörðinni, en brenna- áburðinum, í stað þess að nota hann á jörðina, eða þá útlendum kolum, sem kosta 20—30 kr. smálestin. Pað eitt ætti að vera nægileg ástæða til þess, að reyna eitthvað að aðhafast. 2. bréf. Bleiksmýri 8. marz 1908. Kæri sonur minn! --------— Ég sé það á bréfi þínu, að þér lízt hreint ekki á þetta móiðnaðarfyrirtæki mitt. Ég vona þó, að þú þykkist ekki viö mig, þó ég sé á dálítið annarri skoðun. Ég er nú ekki lærð- ■ur maður, eins og þú veizt, en svo lærður er ég þó, að ég veit það, að móskurður og málfræðisnám eru sitt hvað. Éú leggur föður þínum ráð, og efast ég ekki um, að þau seu af góðum rótum runnin. í*að gerðirðu líka á meðan þú varst yngri. Og það hefir ekki til þessa orðið okkur að varanlegu ágreiningsefni, þó að ég hafi valið úr ráðum þínum þau ein, sem mér leizt vel á. Púvararmigvið fjárglæframönnum oghégómaskúmum. Ráðið er aldrei annað en fallegt, en ég hefi kunnað það miklu lengur en þú °g fylgt því lengi. En sæll er sá, sem hræddur er, sé hann ekki of

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.