Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Qupperneq 29

Eimreiðin - 01.01.1910, Qupperneq 29
29 fé. Og hin önnur áhöld, sem hann átti aö kaupa, sendi hann ekki heldur. Ég fékk »Pramma« til þess að renna skipinu hér upp undir lendinguna, á meðan verið væri að ná gufukatlinum á land. Éað ætlaði nú að ganga full-erfitt með þeim áhöldum, sem við höfð- um; en þó tókst það á endanum slysalaust. Petta er helvíta-mikið bákn, vegur líklega um 6000 pund. Ég skil nú varla í því, að ekki hefði verið hægt að komast af með minni ketil. En látum það nú vera. Hitt var miklu lakara, að með sama skipinu, sem flutti hingað ketilinn, strauk Jón Salómonsson. Ég var sem þrumu lostinn í margá daga. Ég gat varla trú- að því á hann, að öll framkoma hans gagnvart mér hefði ekkert verið annað en svik og prettir. Ég var búinn að lána honum nokkur hundruð krónur að samaniögðu. En það er þó hverfandi í samanburði við alt það tjón, sem hann hefir gert mér. Ekki sízt, ef Norðmaðurinn skilar nú engu af því fé, sem honum var trúað fyrir. Að Jón Salómonsson skyldi hafa slíkan mann að geyma, það hefði ég svarið fyrir. Síðan hann fór, hafa gosið upp ýmsar sögur um hann hér í firðinum, einkum á Eyrinni, þar sem hann var lengst. Og það ótrúlegasta er, hvað hann skuldar mörgum. Hann virðist hafa lánað peninga hjá öllum, sem hann gat haft lán út úr, og þar á meðal konsúlnum. Og honum kvað hann hafa sagt, að hann væri tilvonandi tengdasonur minn. Sem betur fór, sá Sigga mín við þessum pilti. Einhver þvættingur gengur um það hér í firðinum, að þessi Jón Salómonsson sé búfræðingur, að hann hafi flækst til Nor- egs og verið þar í nokkur ár, en líklega aldrei komið nálægt mó- iðnaði. Menn segja, að allan þennan fróðleik um móiðnaðinn muni hann hafa haft úr einhverri ritgerð, sem verið hafi í Eim- reiðinni fyrir nokkrum árum. Kannast þú nokkuð við þá ritgerð? Eins og þú manst, sagði ég Eimreiöinni upp hér um árið, þegar mér féllu ekki landsmálaskoðanir hennar, og fékk aðra til að gera það sama, svo að henni var því nær útrýmt úr firðinum. Er það hugsanlegt, að strákurinn hafi vitað þetta? En hann er nú farinn, hvað sem öllu öðru líður. En það er ekki alt búið enn. Éað er sjaldan ein bára stök. Ég ætlaði nú ekki að gugna við þetta; síður en svo. Ég safnaði saman mönnum, til þess að koma þessum óheilla gufu- katli þangað, sem hann ætti að vera, og vildi nota til þess ak-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.