Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Page 30

Eimreiðin - 01.01.1910, Page 30
3° færið, meðan það var sem bezt, og ís á allri mýrinni; annars skildi ég varla hvernig hægt yrði að koma honum yfir mýrina. Sjálfur bjó ég til geysimikinn sleða undir hann, og svo var lagt á stað í frosti og góðu veðri snemma á þorranum. Eg var sjálfur með í förinni. Tveir hestar skaflajárnaðir gengu fyrir sleðanum og 8 menn drógu með þeim. Alt gekk dá- vel framan af; en þegar við komum upp á miðja mýrina, brast ísinn og ketillinn sunkaði ofan í keldu-skratta. Við urðum að skera sundur aktaumana í mesta ofboði, til þess að hestarnir drægjust ekki öfugir ofan í vökina. Isinn var rétt að kalla hálfr- ar alinnar þykkur, og ég hefði svarið fyrir, að hann þyldi ekki ketilinn. — Par urðum við að skilja við hann, því að engin leið var að því, að ná honum upp á ísinn, og guð veit, hvort hann næst nokkurn tíma upp á þurt land framar. Sleðanum náðum við ekki undan honum; hann situr þar líka. Er nú hægt að hugsa sér meiri óhepni, meiri fyrirmunun, en þetta er! Að ég skildi ekki hafa vit á, að láta bölvaðan ket- ilinn kyrran! Eg hefði þó átt að vita það. að hann var ekki mitt meðfæri. Mér finst ég vel geta þolað glottin á andlitum sveitunga minna — og konsúlsins líka —, þó að þau séu alt annað en góðgjarnleg. En það fer hrollur um mig í hvert skifti sem ég geng upp fyrir bæinn og lít yfir mýrina; þar stendur þetta járn- bákn til hálfs upp úr keldunni og glápir á mig með járnköldu hæðnisglotti, eins og haus á skrímsli. — Jæja, skaðinn gerir menn hygna, en ekki ríka. — — Eú varst að nefna peninga í síðasta bréfi þínu. Biddu sannan fyrir þér! Nei, nú eru peningarnir mínir farnir aðra leið. Nú get ég ekki sent þér peninga, þótt gengið væri af mér dauðum. Líði þér ætíð vel. Pinn elskandi faðir. Davíb Sigurjónsson.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.